fasteignasölur.is
Mánatún 7
1 af 40

Um eignina

SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR EIGNINA

HÚSASKJÓL OG ÁSDÍS RÓSA LÖGFRÆÐINGUR OG LGF KYNNA Í EINKASÖLU: Opna og bjarta 126,1 fm 3ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu við Mánatún 7 í Reykjavík. Stór stofa, eldhús með eyju og 2 svefnherbergi á svefnherbergisgangi. Þvottahús innan íbúðar og yfirbyggðar svalir. Virkilega falleg eign!

Komið er að húsinu frá inngarði með útisvæði og leiktækjum fyrir börn.

Íbúðin er á 2. hæð. Gengið er inn í forstofu með skáp.

Alrými nær í gegnum íbúðina frá suður til norðus og hleypir góðri birtu í gegnum íbúðina og svalir eru í báðar áttir. Svalir til suðurs eru yfirbyggðar og snúa inn í inngarð með leiktækjum.

Eldhús er með eikarinnréttingu og góðri eyju og innbyggð uppþvottavél fylgir. Inn af eldhúsi er þvottahús með innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð, vaski og hillum.

Stofa er rúmgóð með parketi. Svalir til norðurs.

Svefnherbergisgangur: Hjónaherbergi er með parketi og skápum á 2 veggjum. 

Baðherbergi er rúmgott og flísalagt í hólf og gólf. Walk in sturta, gott skápapláss og handklæðaofn.

Herbergi 2 er rúmgott með parketi og skáp.

Á 1. hæð er sér geymsla með hillum og mikilli lofthæð.

Í bílageymslu er vel staðsett bílastæði stutt frá inngangi í húsið, með rafhleðslu.

Á lóð eru leiktæki og göngustígar.

Mánatún er miðsvæðis í borginni en þó er stutt í gönguleiðir og sjávarsíðuna auk þess sem öll þjónusta er við höndina s.s. verslanir og veitingastaðir í Borgartúni.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA TEIKNINGAR.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásdís Rósa Ásgeirsdóttir lögfræðingur og löggiltur fasteignasali netfang: asdisrosa@husaskjol.is eða í síma: 8957784

Pantaðu  verðmat fyrir þína eign.

Meðmæli fyrri viðskiptavina

 

 

 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Húsaskjól
107.000.000 kr.849 þ./m²
+140,4% á 11 árum
20. maí 2015Fyrsta sala
44.500.000 kr.353 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Mánatún 7

105 Reykjavík
107.000.000 kr.849 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2015TegundFjölbýlishúsStærð126,1 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF2316478Fasteignamat103.400.000 kr.Brunabótamat72.260.000 kr.
Skráð hjá
Húsaskjól
HeimilisfangHlíðarsmári 2, 5. hæð, 201 KópavogurSími519-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑