fasteignasölur.is
Reykjamörk 10
1 af 28

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Vorum að fá í sölu 220 fm einbýlishús á tveimur hæðum á stórri 1322fm lóð við Reykjamörk 10 í Hveragerði. Um er að ræða einbýlishús sem hefur verið í miklum framkæmdum. Þó nokkuð mikið er búið að framkvæma og er einnig mikið eftir óklárað. efri hæð hússins var byggð upp og stækkuð, ekki hefur verið gerðar teikningar af þeirri breytingu og eru viðbótafermetrar efri hæðar ekki skráðir. Þetta er hús sem hefur mikla möguleika á stórri lóð sem opna tækifæri. 
Væntanlegum kaupendum er bent á að skoða eignina vel og með fagmönnum. 

Nánari lýsing: 

Anddyri: Rúmgott anddyri þar sem búið að skipt út gluggum en frágangur á lofti og gólfefnum er eftir.
Hol: Hol þar sem gengt inn í svefnherbergi og stofu.
Stofa: Búið er að útbúa tvö svefnherbergi úr stofunni. Auðvelt er að taka niður veggina ig útbúa stóra stofu aftur.
Tvö svefnherbergi:  Rómgóð herbergi.
Stigi: Góður stigi er upp á 2.hæð, Geymsla er undir stiga.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa og góðum glugga. 
Eldhús: hvít innrétting með góðu skápaplássi. Eldhúsið er mjög rúmgott. 
Þvottahús. Þvottahús er inn af eldhúsi.
Viðbygging milli bílskúrs og íbúðar rými:  Rúmlega fokhelt rými.
Bílskúr: Veruleg þörf á endurnýjun. 

2.hæð:
Í dag er rýmið allt opið, búið er að einangra að hluta. Gert er ráð fyrir tveimur til þremur herbergjum, baðherbergi og holi. Góðar svalir eru til suðurs. Efri hæðin er gott sem fokheld og þarfnast mikils frágang.

Bílskúr: Viðbygging er milli bílskúrs og íbúðarrýmis sem er nýtt sem þvottah´su og geymsla. Bílskúrinn er mjög illa á sig kominn og þarfnast algjörar endurnýjunar. 

Hér er eign sem bíður upp á mikla möguleika. í fyrri sölumeðferð var talað um að gefið hafi verið leyfi fyrir byggingarreit á lóðinni. Verið er að kanna stöðuna og réttindin gagnvart því. 

 


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Garður
69.000.000 kr.313 þ./m²
+91,7% á 9 árum
5. janúar 2018Þinglýstur kaupsamningur
36.000.000 kr.163 þ./m²
+47,5% á 3 árum
8. júní 2015Fyrsta sala
24.400.000 kr.111 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Reykjamörk 10

810 Hveragerði
69.000.000 kr.313 þ./m²
Einbýlishús5 svefn · 2 bað
Byggingarár1953TegundEinbýlishúsStærð220,3 m²Herbergi5InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF22107972Fasteignamat73.400.000 kr.Brunabótamat81.050.000 kr.
Skráð hjá
Garður
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑