fasteignasölur.is
Grænalaut 10
1 af 29

Um eignina

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega 4ra herbergja 144,4 fm endaíbúð á efri hæð á frábærum stað við Grænulaut 10 í Reykjanesbæ.
Íbúðin er 144,4fm þar af 5,3fm sérgeymsla. Stórar lokaðar svalir með flottu útsýni til suðurs og vestur. 


Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, rúmgott eldhús með eyju, stofu og borðstofu.

Forstofa hefur flísar á gólfi og þar er skápur.
Gangur er parketlagður.
Stofa er parketlögð  og hurð er út á stórar lokaðar svalir sem snúa í suð-vestur.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er góð innrétting og eldunareyja ásamt góðum tækjum, ofn, helluborð og háfur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með eigninni.
Í þvottahúsi eru flísar á gólfi.  Þar er góð hvít innrétting með skolvaski og góðu skápaplássi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru þrjú og eru þau öll mjög rúmgóð. Parket á gólfi og skápar í öllum herbergjum.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi og veggjum að hluta. Þar er hvít innrétting, handklæðaofn, upphengt salerni og rúmgóð sturtuaðstaða stúkuð af með gleri.
Geymsla er 5,3 fm  í sameign á neðri hæð.

*Hiti er í innkeyrslu og í stétt við inngang.
*Þvottahús er í íbúðinni.
*Sér merkt bílastæði með hleðslustöð.
*Göngufæri frá Holtaskóla, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sundmiðstöð, íþróttahúsi, Reykjaneshöll, fimleikahúsi og verslunarkjarna.

Nánari upplýsingar um eignina veitir: 

Halldór Magnússon lfs.
s. 863-4495 / 420-4000    
dori@studlaberg.is 

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Stuðlaberg
93.900.000 kr.650 þ./m²
+65,0% á 6 árum
29. júlí 2020Fyrsta sala
56.900.000 kr.394 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Grænalaut 10

230 Reykjanesbær
93.900.000 kr.650 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2020TegundFjölbýlishúsStærð144,4 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25008022Fasteignamat80.950.000 kr.Brunabótamat79.750.000 kr.
Skráð hjá
Stuðlaberg
HeimilisfangHafnargata 20, 230Sími420-4000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑