fasteignasölur.is
Þessi eign er ekki lengur í sölu.
Hjallabraut 33
Opið hús í dag kl. 13:00–13:30
1 af 30

Um eignina

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð (efstu) í vinsælu fjölbýli fyrir 60 ára og eldri í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Fallegt útsýni yfir hraunið. Íbúðin getur verið laus fljótlega.

Íbúar hafa aðgengi að handavinnustofu, samkvæmissal, setustofu, hársnyrtistofu og snyrtistofu og er mögulegt að kaupa hádegismat alla virka daga. Einnig er verslun í göngufæri.

Íbúðin er skráð 71,5 fm skv. HMS en til viðbótar er 7,8 fm sérgeymsla á jarðhæð sem er ekki í skráðri fermetratölu eignarinnar. 


Nánari lýsing eignar:
Forstofa
með skáp.
Björt og rúmgóð stofa og borðstofa. Fallegt útsýni. Útgengt á flísalagðar, yfirbyggðar vestur svalir með góðu útsýni. 
Eldhús með eikarinnréttingu. Flísar á milli efri og neðri skápa. Helluborð með háf yfir og bakaraofn í vinnuhæð. Tengi fyrir uppþvottavél. 
Tvö rúmgóð svefnherbergi, bæði með skápum. 
Flísalagt baðherbergi. Innrétting með handlaug, skápur, salerni og ,,walk in'' sturta. Tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla í sameign.  

Nýlegt parket á gólfi (2020). Flísar á baðherbergi. 
Um er að ræða fallega íbúð í þessu góða og vinsæla fjölbýlishúsi eldri borgara við Hjallabrautina. 

Nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða á netfangið glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Hraunhamar
69.900.000 kr.978 þ./m²
+96,9% á 10 árum
16. nóvember 2016Fyrsta sala
35.500.000 kr.497 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hjallabraut 33

220 Hafnarfjörður
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1989TegundFjölbýlishúsStærð71,5 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF20756027Fasteignamat56.300.000 kr.Brunabótamat49.400.000 kr.
Skráð hjá
Hraunhamar
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Sambærilegar eignir í hverfinu

Allar 30 myndir

Upp ↑