fasteignasölur.is
Barmahlíð 15
1 af 72

Um eignina

Miklaborg og Böddi kynna: Barmahlíð 15 – falleg og vel skipulögð 4ra herbergja fjölskylduíbúð með sérinngangi í góðu Sigvaldahúsi á frábærum stað í Hlíðunum.

Eignin er skráð 100,5 fm og þar af er 9,2 fm sérgeymsla innan íbúðar. Íbúðin er á neðstu hæð, með þremur svefnherbergjum, björtu alrými, rúmgóðri stofu og endurnýjuðu eldhúsi og baðherbergi.


Nánari upplýsingar: Böddi LGF S: 8216300 eða boddi@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Forstofa og stigi: Með slitsterku og vatnsþolnu teppi á gólfi.

Eldhús: Falleg hvít innrétting með góðu vinnu- og skápaplássi. Innbyggð uppþvottavél, ofn, keramikhelluborð og veggfastur háfur. Stæði er fyrir ísskáp.

Stofa og alrými: Eldhús og stofa mynda bjart og opið alrými með parketi á gólfi. Stofan er rúmgóð og stórir gluggar veita einstaklega góða birtu.

Svefnherbergi: Þrjú góð svefnherbergi, öll með parketi á gólfi og fataskápum.

Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með nýlegum flísum á gólfi, hvítri innréttingu, upphengdu salerni, sturtuklefa og handklæðaofni.

Geymsla og þvottaaðstaða: Rúmgóð 9,2 fm sérgeymsla er innan íbúðar með opnanlegum glugga. Aðstaða fyrir þvottavél og aukið geymslurými er undir stiga.

Sameiginleg geymsla er í kjallara með hitagrind og rafmagnstöflu. Hita- og rafmagnsreikningar eru aðskildir fyrir íbúðir hússins.

Helstu kostir:

  • Sérinngangur og dýrahald því mögulegt.
  • Sérsniðnar rúllugardínur frá Sólargluggatjöldum fylgja í flestum rýmum.
  • Góður sólpallur fyrir framan húsið er í sameign.
  • Góð hljóðvist milli hæða.
  • Snyrtileg og vel viðhaldin eign í góðu húsi.
  • Þrjú svefnherbergi og rúmgóð geymsla innan íbúðar.

Framkvæmdir við húsið 2016–2022:

  • Brunnur og skólplögn frá brunni út í götu endurnýjuð 2016.
  • Húsið drenað, múrviðgert og málað 2017.
  • Skorsteinn fjarlægður, negling þakjárns yfirfarin og þak málað 2022.
  • Gluggar málaðir 2022.
  • Plaströr liggja frá húsinu út í brunn, en ekki liggur fyrir hvenær frárennslislagnir voru endurnýjaðar.

Endurbætur innan íbúðar 2015–2023:

  • Eldhús, rofar og innstungur endurnýjuð 2015.
  • Fataskápar endurnýjaðir 2017 og 2020.
  • Gólf flotuð og nýtt harðparket lagt 2019.
  • Hurðargöt stækkuð og nýjar innihurðir settar 2019.
  • Forstofa og stigi endurnýjuð 2020.
  • Nýtt gler sett í stofuglugga 2023.
  • Baðherbergisgólf, sturtuklefi og handklæðaofn endurnýjuð 2023.

Virkilega falleg og vel skipulögð fjölskyldueign á eftirsóttum stað í Hlíðunum. Stutt er í leik- og grunnskóla, menntaskóla og alla helstu þjónustu. Öskjuhlíð, Perlan og Nauthólsvík eru í næsta nágrenni og miðborg Reykjavíkur í þægilegu göngufæri.


Nánari upplýsingar: Böddi LGF S: 8216300 eða boddi@miklaborg.is

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
85.900.000 kr.855 þ./m²
+4,8% á 2 árum
20. september 2024Þinglýstur kaupsamningur
82.000.000 kr.816 þ./m²
+53,3% á 4 árum
13. janúar 2021Þinglýstur kaupsamningur
53.500.000 kr.532 þ./m²
+87,7% á 5 árum
14. september 2015Fyrsta sala
28.500.000 kr.284 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Barmahlíð 15

105 Reykjavík
85.900.000 kr.855 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1949TegundFjölbýlishúsStærð100,5 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2227476Fasteignamat76.800.000 kr.Brunabótamat50.600.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 72 myndir

Upp ↑