1 af 23
Um eignina
Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna: Hafnarbraut 8, Neskaupstað.
Eignin er samkvæmt skráningu 282.5 fermetrar. Gamall geymsluskúr í ágætu ástandi er bakvið húsið. Mögulega er hann inni í fermetratölunni.
Varmadæla hefur verið sett upp og er hitakostnaður eftir það aðeins brot af því sem áður var.
Jarðhæð: Tvöfaldur bílskúr með innkeyrsluhurð og gönguhurð. Á bakvið bílskúrinn er lagnarými þar sem auðvelt er að komast að lögnum.
Gengið er upp breiðar útitröppu, með samtengdum svölum.
Miðhæð: Komið er inn í forstofu og er gengið úr henni inn í íbúðina. Í forstofunni er lítil lúga niður í bílskúrinn.
Inn af forstofu er löng og mjó geymsla sé gengið í gegn um hana er komið að bakdyarainngangi og hefur verið byggt skýli framan við útidyrnar.
Við hlið forstofunnar er opið rými sem liggur eftir húsinu frá suðri til norðurs. Þar er góð stofa með stórum útsýnisglugga, á milli stofu og eldhúss er rúmgott hol og er það opið inn í eldhúsið.
Efsta hæð: Á efstu hæð eru fjögur svefnherbergi. Þrjú þeirra eru rúmgóð. Svaladyr eru úr einu herberginu út á stórar svalir. Baðherbergi er flísalagt og hafa veggflísar verið málaðar. Sturtuklefi er á baðherberginu.
Lítil sólstofa er á svölunum og er innangengt í hana úr húsinu.
Stórar svalir eru framan og utan við efstu hæð hússins.
Aukaíbúð: Séríbúð er á hæðinni með sérinngangi, í hana er innangengt úr íbúðarhúsinu. Íbúðin er um 70 fermetrar og skiptist svefnherbergi, stofu og rúmgott baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél.
Verðsaga
3 þinglýstir kaupsamningarÍ sölu núnaÁsett verð · Lindin
69.900.000 kr.247 þ./m²
+111,8% á 6 árum
29. október 2020Þinglýstur kaupsamningur
33.000.000 kr.117 þ./m²
+130,8% á 12 árum
8. janúar 2009Þinglýstur kaupsamningur
14.300.000 kr.40 þ./m²
+14,4% á 3 árum
23. maí 2006Fyrsta sala
12.500.000 kr.35 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Hafnarbraut 8
740 Neskaupstaður
69.900.000 kr.247 þ./m²
Einbýlishús
Byggingarár1968TegundEinbýlishúsStærð282,5 m²Herbergi9InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF21691173Fasteignamat56.450.000 kr.Brunabótamat122.110.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 23 myndir
Upp ↑





















