fasteignasölur.is
Hlíðarból
1 af 28

Um eignina

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF.  sími: 487-5028.

Einbýlishús að Hlíðarbóli 861 Hvolsvöllur
Eignin samanstendur af tveimur húsum, sem byggð voru sem einbýlishús og bílskúr, en að undanförnu hefur verið rekið gistiheimili í húsunum.  Einbýlishúsið er byggt árið 1980 úr steinsteypu og og er klætt að utan með stálklæðningu og timbri að hluta.  Eignin telur:  Anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.  Baðherbergi með flísum á gólfi, flísaplötum á veggjum sturtu og lítilli innréttingu.  Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, sturtu og innréttingu.  Þvottahús með flísum á gólfi.  Setustofu með parketi á gólfi.  Eldhús/borðstofu með parketi á gólfi og ágætri innréttingu, hurð er þaðan út á verönd. Eitt eins manns herbergi með dúk á gólfi.  Stórt fjölskylduherbergi með parketi á gólfi.  Þrjú tveggja manna herbergi með parketi á gólfum.  Húsið er kynt með rafmangi.  Við það er verönd úr timbri.  Minna húsið (bílskúrinn) er byggt úr timbri árið 1982 og er klætt að utanverðu með stálklæðningu og standandi timburklæðningu á einni hlið.  Eignin telur:  Fordyri með timburgólfi.  Sambyggt eldhús og setustofu með parketi á gólfi og lítilli innréttingu.  Baðherbergi með flísum á gólfi og flísaplötum á veggju, sturtu og innréttingu.  Tvö tveggja manna herbergi með parketi á gólfum.  Húsið er kynt með rafmangi.  Við húsin eru steyptar og hellulagðar gangstéttar, malarborið bifreiðastæði.  Húsunum fylgja lóðarréttindi.

Allar nánari upplýsingar veitir Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877, netfang: agust@fannberg.is

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Hlíðarból

861 Hvolsvöllur (dreifbýli)
105.000.000 kr.0
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð371978,1 m²BílskúrFasteignanúmerF21937414Fasteignamat74.401.000 kr.Brunabótamat188.840.000 kr.
Skráð hjá
Fannberg fasteignasala ehf.
HeimilisfangÞrúðvangi 18, 850 HellaSími487-5028

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑