fasteignasölur.is
Hamraborg 36
1 af 26

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Hamraborg 36 – 1B, 200 Kópavogur.


Mikið endurnýjuð og vel staðsett 3ja herbergja íbúð við Hamraborg 36 í Kópavogi. Íbúðin hefur nýlega verið tekin í gegn með nýju parketi, nýjum gólflistum, nýjum innihurðum, nýrri eldhúsinnréttingu, nýrri eyju, uppfærðu baðherbergi og endurnýjaðri lýsingu. Skipulagi íbúðarinnar hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum og eldhús fært inn í stofu, sem skapar opið og betra alrými. Frábær staðsetning þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, heilsugæslu, bókasafn, matvöruverslun og alla helstu þjónustu.

Skráð stærð 67,4fm

Helstu atriði
  • Mikið endurnýjuð 3ja íbúð á góðum stað í Hamraborg.
  • Tvö rúmgóð svefnherbergi
  • Nýtt parket, nýir gólflistar, nýjar innihurðir og íbúðin nýlega máluð.
  • Nýtt eldhús með eyju og innbyggðri þvottavél.
  • Endurgert baðherbergi með nýjum flísum, sturtu, salerni, vaski og lýsingu.
Nánari lýsing
Við Hamraborg 36 er að finna þessa mikið endurnýjuðu íbúð á frábærum miðsvæðis stað í Kópavogi. Íbúðin hefur nýlega verið tekin í gegn þar sem lögð var áhersla á að bæta flæði, yfirbragð og notagildi rýmisins. Skipulagi íbúðarinnar hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum og eldhúsið fært inn í stofu, sem myndar opið alrými þar sem stofa og eldhús fara saman.
Íbúðin hefur verið máluð, nýtt parket lagt á gólf ásamt nýjum gólflistum og skipt hefur verið um innihurðir. Eldhúsið er nýtt með fallegri innréttingu og eyju sem nýtist vel bæði sem vinnusvæði og hluti af alrýminu. Í eldhúsi er nýr vaskur og innbyggð þvottavél.
Baðherbergið hefur verið uppfært með nýjum flísum á gólf og veggi, nýrri sturtu, nýju salerni og nýjum vaski. Þá hefur lýsing verið endurnýjuð og skipulag baðherbergis uppfært. Tengingar og lýsing hafa einnig verið uppfærð í íbúðinni.

Staðsetningin er einn af helstu kostum íbúðarinnar. Stutt er í leikskóla, grunnskóla, heilsugæslu, bókasafn, matvöruverslun og aðra daglega þjónustu. Hér er því um að ræða vel staðsetta og mikið endurnýjaða íbúð í miðju Kópavogs þar sem þjónusta og samgöngur eru í næsta nágrenni.

Endurbætur/viðhald á sameign
  • 2016 til 2017, umfangsmiklar framkvæmdir utanhúss • Húsið málað og steypuviðgerðir framkvæmdar • Timburverk yfirfarið • Þak viðgert að hluta • Gler endurnýjað þar sem þörf var á • Heildarkostnaður framkvæmda var um 28,5 m.kr., sem samsvarar um 45 m.kr. á núverandi verðlagi
  • 2018 • Dyrasímar endurnýjaðir
  • 2020 - Þak yfirfarið og metið í góðu ástandi
  • 2021 - Múrviðgerð framkvæmd við inngang að bílageymslu
  • 2022• LED lýsing sett upp í sameign• Hitastrengir settir í niðurföll
  • 2025• Þvottahús endurbætt• -Nýtt rafmagn lagt í þvottahúsi -• Tenglum fjölgað svo íbúar geti tengt eigin þvottavélar og þurrkara
  • 2026• Hitagrind hússins endurnýjuð að fullu - • Ofn í sameign endurnýjaður


Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is


www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Pálsson fasteignasala
63.200.000 kr.938 þ./m²
+62,9% á 5 árum
15. apríl 2021Þinglýstur kaupsamningur
38.800.000 kr.576 þ./m²
+24,4% á 4 árum
21. mars 2017Fyrsta sala
31.200.000 kr.463 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hamraborg 36

200 Kópavogur
63.200.000 kr.938 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1978TegundFjölbýlishúsStærð67,4 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20613922Fasteignamat56.250.000 kr.Brunabótamat36.700.000 kr.
Skráð hjá
Pálsson fasteignasala
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑