fasteignasölur.is
Laufengi 34
Opið hús á morgun kl. 17:30–18:00
1 af 42

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð með sérinngangi á 2. hæð í góðu fjölbýli á mjög góðum stað í Engjahverfinu í Grafarvogi. Sérmerkt bílastæði fylgir. Stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Húsið var tekið í gegn að stórum hluta 2022-2023 og var skipt um járn á þaki, húsið sprunguviðgert og málað.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.

Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 107,3fm og þar af er geymsla 5,4fm.

Nánari lýsing:

Forstofa er með góðum skáp, fatahengi og flísar á gólfi.
Stofa er mjög rúmgóð og björt með parket á gólfi. Útgengt á góðar svalir og þaðan er fallegt útsýni.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu og flísar milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi. Opið í stofu.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum innbyggðum skáp og parket á gólfi.
Herbergi II er rúmgott með innbyggðum skáp og parket á gólfi.
Herbergi III er með innbyggðum skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er með nýlegri innréttingu, upphengdu salerni, innangengri sturtu og glugga. Flisar í hólf og gólf.
Þvottahús er innan íbúðar með tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara og skolvask. Flísar á gólfi og ágætis geymslupláss.

Góð sérgeymsla með glugga í sameign á jarðhæð.
Hjólageymsla einnig í sameign á jarðhæð.

Frábær staðsetning og stutt í leik-,grunn- og menntaskóla, íþróttir og afþreyingu í Egilshöll, góðar gönguleiðir, golfvöll og alla helstu þjónustu. Stutt í stofnbrautir.

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is


 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
74.900.000 kr.698 þ./m²
+89,6% á 10 árum
7. mars 2017Fyrsta sala
39.500.000 kr.368 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Laufengi 34

112 Reykjavík
74.900.000 kr.698 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1992TegundFjölbýlishúsStærð107,3 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20395171Fasteignamat70.050.000 kr.Brunabótamat52.850.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑