fasteignasölur.is
Orkureiturinn  D1 304
1 af 32

Um eignina

Jason Ólafsson, s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn. Glæsilegar nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir.

Heimasíða Orkureitsins

Orkureitur - Suðurlandsbraut 40 íbúð 304 er 3ja herbergja 120,8 fm íbúð með sérmerktu stæði B001. Íbúðin er við Suðurlandsbrautar 40 og er á 3. hæð. 

Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með mjög rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi með sturtu. Rennihurð úr baðherbergi í þvottarými. 
Hjónasvíta með fataskápum og sér baðherbergi, baðkar, flísar á gólfum og veggjum.
Svefnherbergi II er 9,6 fm að innra máli og er með einföldum fataskáp.
Eldhúsið er með stein á borðplötum. Glæsileg innrétting frá GKS með eyju. Safír Harmonía 2.
Alrýmið er með gluggum til suðurs og þaðan er hægt að ganga út á svalir sem eru 7,8fm að stærð.   
Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði. 
Sérgeymsla er 7,8 fm. Nr. K1-031
Sérmerkt stæði B001
Innréttingaþema er Safír Harmonía 2. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. 

Nánar um Orkureitinn: 
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.
Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027. 

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar: 
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021 - tölvupóstur: hreidar@betristofan.is
Telma Rut Frímannsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 772-3555 - tölvupóstur: telma@bertristofan.is

 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Orkureiturinn D1 304

108 Reykjavík
121.900.000 kr.1.009 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 3 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð120,8 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF25362673Fasteignamat91.000.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑