fasteignasölur.is
Dalsmúli 1
1 af 22

Um eignina

Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Afar falleg og vel skipulögð 52,3 fm, tveggja herbergja íbúð á 5.hæð í nýbyggingu á Orkureitnum, Dalsmúli 1.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is

Eignin skiptist í:

Forstofu: með góðu skápaplássi.
Baðherbergi: er með sturtu og fallegri innréttingu. Þvottaaðstaða er inni á  baðherbergi.
Eldhús: er með fallegri innréttingu og innbyggðum tækjum.
Alrými: er opið við stofu og borðstofu með útgengt útá rúmgóðar suðaustur svalir.
Hjónaherbergi: með góðum skápum er inn af alrými.

Íbúðin er með vönduðum innréttingum frá Nobila (sölu- og þjónustuaðili: GKS) innrétttingarþema sem ákveðin hafa verið af innanhússarkitekt verkefnisins, Rut Káradóttir er R1 - Fönn.

Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella.

Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir.
 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
64.900.000 kr.1213 þ./m²
+4,7% á 2 árum
23. október 2024Fyrsta sala
61.970.000 kr.1158 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Dalsmúli 1

108 Reykjavík
64.900.000 kr.1.213 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2024TegundFjölbýlishúsStærð53,5 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF252989818Fasteignamat53.350.000 kr.Brunabótamat34.800.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑