fasteignasölur.is
Hafnarbraut 14
1 af 36

Um eignina

Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Glæsileg 3 herbergja íbúð á 4.hæð við Hafnarbraut 14a, Kópavogi - íbúð 404.  Mikið og fallegt útsýni frá íbúðinni sem er skráð samtals 100,7 fm. Sérmerkt stæði í lokuðum bílakjallara fylgir ásamt hleðslustöð.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is
 
Komið er inn í forstofu með fallegum fataskápum, harðparket á gólfi.
Gangur / hol með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, falleg innrétting, speglaskápur og handlaug, sturta með gleri, upphengt salerni og handklæðaofn.
Barnaherbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á rúmgóðar svalir.
Eldhús er opið og samliggjandi með stofu, falleg innrétting, eyja með helluborði, háfur yfir eyju, bakarofnar í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél, harðparket á gólfi.
Þvottahús/geymsla með góðri innréttingu og vaski, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með góðum fataskápum, teppi á gólfi. 

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign, Tvær hleðslustöðvar á bílaplani í sameign íbúa.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Hafnarbraut 14

200 Kópavogur
94.900.000 kr.942 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2021TegundFjölbýlishúsStærð100,7 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25089625Fasteignamat85.150.000 kr.Brunabótamat73.800.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑