fasteignasölur.is
Mávanes 9
1 af 12

Um eignina

Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali (s. 775-1515 / jason@betristofan.is), kynna: Mávanes 9, 210 Garðabæ – Frumbyggjar selja einstaklega vel staðsett einbýlishús með glæsilegum arkitektúr á fallegri sjávarlóð sunnan megin á Arnarnesinu.

Um er að ræða upprunalegt 316,4 m² einbýlishús sem teiknað var af Helga Hjálmarssyni arkitekt. Húsið stendur á 1.400 m² suðvesturlóð alveg við sjóinn sem tryggir ómótstæðilegt og óhindrað útsýni. Húsið var reist árið 1970 og hefur verið í eigu sömu aðila frá upphafi.
 
Skipting eignarinnar:
  • Aðalhæð: 211,9 m²
  • Bílskúr: 62,8 m²
  • Bátaskýli / geymsla: 41,7 m²
  • Samtals: 316,4 m²
  • Lóðarstærð: 1.400 m²
  • Verð: Tilboð
 
 
NÁNARI LÝSING:
  • Anddyri og alrými:
  • Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu.
  • Gestasnyrting: Snyrtileg og flísalögð gestasnyrting staðsett við anddyrið.
  • Skrifstofa/Svefnherbergi: Rúmgott herbergi sem nýtist vel sem skrifstofa eða svefnherbergi. Fallegur gluggi í herberginu með sjávarútsýni. 
  • Stofa: Björt og afar rúmgóð stofa með arni og glæsilegu útsýni yfir hafið. Úr stofu er vönduð rennihurð út á pall með útiarni og þaðan áfram út í garð.
  • Borðstofa: Opin og falleg borðstofa. Rýmið er einstaklega bjart með gluggum til norðurs og stórum gluggum sem snúa mót suðri með sjávarútsýni.
  • Eldhús: Sérsmíðuð eldhúsinnrétting og parket á gólfi.
  • Sjónvarpsstofa: Gengið er niður þrjár tröppur á neðri pall þar sem sjónvarpsstofan er staðsett. Frá efri palli er gengið út á skjólsælan pall til suðurs með útiarni.
  • Auka anddyri & þvottahús: Sér þvottahús er staðsett á milli eldhúss og auka anddyris.
Svefnherbergisgangur:
  • Gangurinn er teppalagður og leiðir inn í svefnálmu hússins.
  • Baðherbergi: Staðsett í álmunni, með sturtu.
  • Svefnherbergi: Fjögur svefnherbergi eru í álmunni.
  • Hjónaherbergi: Sérlega rúmgott með fataherbergi og sérbaðherbergi innaf sem er útbúið baðkari.
Bílskúr og neðri hæð (bátaskýli/geymsla):
  • Bílskúr: Skráður 62,8 m². Rúmgóður með tveimur innbyggðum geymslum. Hleðslupláss og gott athafnasvæði.
  • Bátaskýli/Geymsla: 41,7 m² rými á neðri hæð sem snýr til suðurs út í garðinn. Rýmið er með bæði hefðbundinni hurð og bílskúrshurð. Þetta rými býður upp á mikla möguleika og gæti nýst sem bátaskýli, vinnustofa, geymsla eða jafnvel auka svefnherbergi.
Lóð og ytra byrði:
  • Lóðin: 1.400 m² stóreignarlóð sem snýr til suðvesturs alveg niður að sjó. Einstök staðsetning á Arnarnesinu.
  • Bílastæði: Gott hellulagt plan með stæði fyrir 3 bíla.
  • Þak: Upprunalegt þak sem hefur fengið reglulegt og gott viðhald ásamt eftirliti undanfarin ár.
Niðurlag:
Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að eignast vel hannað arkitektaheimili á einum eftirsóttasta stað landsins. Staðsetningin við sjávarlóð á Arnarnesi gerist ekki mikið betri.

Nánari upplýsingar veita Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 / jason@betristofan.is / löggiltur fasteignasali


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Mávanes 9

210 Garðabær
Tilboð
Fjölbýlishús5 svefn · 4 bað
Byggingarár1964TegundFjölbýlishúsStærð316,4 m²Herbergi7InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF20718072Fasteignamat283.400.000 kr.Brunabótamat154.850.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑