fasteignasölur.is
Austurmörk 30A
1 af 23

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Blómstrandi bær
Tívolíbyggð - Austurmörk 30 - íbúð 204 , 810 Hveragerði er mjög vönduð 74,9 fm 4 herbergja íbúð á annari hæð með suðursvölum. Sérsmíðaðar innréttingar og eldhústæki frá AEG. Tilbúin til afhendingar.

BÓKIÐ SKOÐUN HJÁ RÖGNVALDI Í SÍMA 660-3452  EÐA HILMARI Í SÍMA 824-9098 EÐA DAÐA Í SÍMA 8249096 EÐA ALFREÐ Í SÍMA 776-2150


Heimasíða fyrir verkefnið 

Blómstrandi bær
Eignamiðlun og JÁVERK ehf kynna nýjar eignir í Tívolíbyggð  Hveragerði.
Í Hveragerði blómstrar mannlífið. Útivist, afþreying, listir og matarmenning er meðal þess sem samfélagið í Hveragerði hefur upp á að bjóða. Í Hveragerði er hægt að vera laus við ys og þys borgarinnar sem þó er í seilingarfjarlægð. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna.

Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Selós úr vönduðu slitsterku eikar melamin efni að utan en gráu melamin efni að innan.
Vönduð heimilistæki frá AEG eru í eldhúsum. Kæli- og frystiskápur sem og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. Spanhelluborð er fellt í borðplötu og gufugleypir yfir. Borðplötur eru plastlagðar. Blöndunartæki eru frá Grohe og eldhúsvaskur frá Poats.
Baðinnréttingar eru sérsmíðaðar, vaskaskápar eru úr slitsterku eikar melamin efni. Skúffubrautir eru með mjúklokun. Borðplatan er plastlögð. Handlaugar- og sturtutæki eru frá Grohe og salerni frá Euro Ceramic. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergjum.
Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu.

Austurmörk 30 er 13 íbúða bygging, staðsteypt, einangruð og klædd að utan með Áltrapisuklæðningu. Þakplata eru staðsteypt og einangruð að ofan. Gluggar og hurðir eru álklæddir timburgluggar. Gengið er inní íbúðir í hverju húsi af opnum svalagöngum. Ein lyfta er í húsinu. Á fyrstu hæð fylgja hellulagðir sérafnotareitir en á efri hæðum eru svalir.

Íbúðirnar er byggðar samkvæmt ströngustu kröfum Umhverfisstofnunar til að geta hlotið Svansvottun við lok framkvæmda

Nánari upplýsingar gefa :
RÖGNVALDUR Í SÍMA 660-3452, rognvaldur@eignamidlun.is
HILMAR Í SÍMA 824-9098, hilmar@eignamidlun.is
DAÐI Í SÍMA 8249096, dadi@eignamidlun.is
ALFREÐ Í SÍMA 776-2150, alfred@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Austurmörk 30A

810 Hveragerði
57.500.000 kr.768 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð74,9 m²Herbergi4InngangurSérinngangurLyftaFasteignanúmerF253224516Fasteignamat54.450.000 kr.Brunabótamat47.350.000 kr.
Skráð hjá
Eignamiðlun
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑