fasteignasölur.is
Sogavegur 101
1 af 25

Um eignina

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna fallega 2ja herbergja íbúð með sérinngangi í fjórbýlishúsi miðsvæðis í Reykjavík að Sogavegi 101.  Eignin er á vinsælum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og leik-. grunn- og framhaldsskóla. 
 
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.   Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína.
Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 72,3, þar af er geymsla 3,1 fm.

Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu ásamt geymslu og þvottaherbergi.

Nánari lýsing:

Forstofa komið er inn í forstofu um sérinngang og flísar á gólfi.
Stofa er björt með stórum gluggum og parket á gólfi.
Eldhús með upprunalegri innréttingu, góðum borðkrók, ofn í vinnuhæð, viftu yfir helluborði og parket á gólfi.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Baðherbergi með innréttingu með handlaug og baðkar með sturtuaðstöðu, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús við eldhús og þaðan aðgengi að sameign.
Geymsla við forstofu.

Um er að ræða vel staðsetta eign miðsvæðis í Reykjavík. Stutt er í alla verslun og þjónustu. Stutt í leikskóla (Vinagerði), grunnskóla (Réttarholtsskóli/Breiðagerðisskóli) og íþróttasvæði.

Nánari upplýsingar um eignina veita Sólveig Regína Biard, löggiltur fasteignasali, í síma 869-4879 eða á netfanginu solveig@trausti.is og Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
57.900.000 kr.801 þ./m²
+16,0% á 3 árum
6. október 2023Fyrsta sala
49.900.000 kr.690 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sogavegur 101

108 Reykjavík
57.900.000 kr.801 þ./m²
Hæð1 svefn · 1 bað
Byggingarár1966TegundHæðStærð72,3 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20354457Fasteignamat58.350.000 kr.Brunabótamat35.400.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑