fasteignasölur.is
Lofnarbrunnur 14 SELD m fyrirvara
1 af 44

Um eignina

**** Eignin er SELD með hefðbundnum fyrirvara ****

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna fallega og bjarta 5 herbergja íbúð á 2. hæð með svölum og rúmgóðu bílastæði í bílakjallara í nýlegu lyftu fjölbýli í Lofnarbrunni 14, Úlfarsárdal. Frábært útsýni er úr eigninni til suðurs.  Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með álklæðningu og því viðhaldslétt. Eignin er LAUS við kaupsamning.

Bókið skoðun hjá Aðalsteini í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Smelltu hér til sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 126,5 fm. Íbúðin sjálf er 121,4 fm og geymsla 5,1 fm.

Nánari lýsing:
Forstofugangur
með hvítlökkuðum skápum.
Stofa er björt og rúmgóð og þaðan er útgengt á suðursvalir.
Borðstofa rúmgóð við eldhús.
Eldhús með hvítlakkaðri innréttingu með mattri áferð og svartri borðplötu. Í borðplötu er yfirfelldur stálvaskur með borði og einnar handar blöndunartæki. Efri skápar að hluta til svört plastlögð eik. Eldavél með keramikhelluborði, ofn og innfellda uppþvottavél.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum skápum. 
Svefnherbergi II er mjög rúmgott með innbyggðum fataskáp.
Svefnherbergi III er rúmgott með fataskáp.
Svefnherbergi IIII er rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi er með hvítlakkaðri innréttingu, handlaug, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Tengi og gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt í hólf og gólf. 

Sérgeymsla er í kjallara merkt -102.
Bílastæði í bílakjallara fylgir eigninni.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.

Falleg fjölskyldueign og leik- og grunnskóli, íþróttaaðstaða (Fram) og sundlaug í göngufæri. Stutt í alla helstu þjónustu og stofnbrautir. Stutt í útivist og góðar gönguleiðir.

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is





 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
94.900.000 kr.750 þ./m²
+44,0% á 6 árum
26. nóvember 2020Fyrsta sala
65.900.000 kr.521 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lofnarbrunnur 14 SELD m fyrirvara

113 Reykjavík
94.900.000 kr.750 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 1 bað
Byggingarár2020TegundFjölbýlishúsStærð126,5 m²Herbergi5InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25107787Fasteignamat93.750.000 kr.Brunabótamat90.570.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 44 myndir

Upp ↑