fasteignasölur.is
Laugavegur 103
1 af 35

Um eignina

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu lyftuhúsi í miðbæ Reykjavíkur að Laugavegi 103. Myndavéladyrasími er í húsinu, sem mikið hefur verið uppgert á síðustu árum. Húsið er steinsnar frá Hlemmi mathöll þar sem nýbúið er að gera skemmtilegt torg og skrúðgarð/göngugötu sem liggur að Snorrabrautinni, beint fyrir utan húsið og því engin bílaumferð þar.
Nýtt parket er á íbúðinni.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 74,9 fm og þar af er geymsla skráð 7 fm.

Nánari lýsing:
Forstofugangur
með fatahengi.
Alrými er L-laga og vel skipulagt með bjarta stofu, borðstofu og eldhús.
Útgengt á yfirbyggðar suðursvalir.
Eldhús er nýlegt með innbyggða uppþvottavél, flísar milli skápa og viftu yfir helluborði.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og nýjan fataskáp.
Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi og nýjan fataskáp.
Baðherbergi er nýlegt og flísalagt í hólf og gólf með "walk-in" sturtuklefa, snyrtilega innréttingu, upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla íbúðar er í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Flott eign í miðbæ Reykjavíkur steinsnar frá allri þjónustu og öllu því skemmtilega sem miðbær borgarinnar hefur upp á að bjóða. Stutt í bæði leik- og grunnskóla. Klambratún og Kjarvalsstaðir í göngufæri og mjög stutt í Sundhöll Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
72.900.000 kr.973 þ./m²
+69,5% á 7 árum
9. desember 2019Þinglýstur kaupsamningur
43.000.000 kr.574 þ./m²
+38,7% á 5 árum
7. maí 2015Fyrsta sala
31.000.000 kr.414 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Laugavegur 103

105 Reykjavík
72.900.000 kr.973 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1967TegundFjölbýlishúsStærð74,9 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF22887698Fasteignamat68.700.000 kr.Brunabótamat51.050.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑