fasteignasölur.is
Suðurmýri 58
1 af 47

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu: 
Nýlegt og fallegt, vel skipulagt 222,2 fermetra einbýlishús á Seltjarnarnesi á tveimur hæðum að meðtöldum 38,2 fermetra innbyggðum bílskúr og stórum svölum með heitum potti.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Nánari lýsing:

Eignin er á tveimur hæðum.

1. hæð: Komið er inn í rúmgóða forstofu á neðri hæðinni og þar inn af er eitt svefnherbergi. Einnig eru tvö önnur svefnherbergi, sjónvarpshol og baðherbergi með baðkari og sturtu á neðri hæðinni ásamt tvöföldu þvottahúsi og stórum bílskúr (innangengt).
2. hæð: Á efri hæðinni er eldhús með stórri eyju, stofa, borðstofa og hjónaherbergi með sér fata- og baðherbergi með sturtu. Út frá stofunni er útgengt á stórar yfirbyggðar svalir til suðurs með heitum potti (teiknuð hefur verið svalalokun). 

Gólfhiti er á báðum hæðum.
Stórir og fallegir gluggar eru í húsinu. 

Lóðin var hönnuð af Birni landslagsarkitekt og afmarkast hún bakatil með steyptum garðvegg. Hlið er á veggnum Eiðistorgs megin svo auðvelt er að koma aftan að húsinu þar sem er annar inngangur í húsið.

Á þaki er einangrun og dúkur frá Makron og þar ofan á er svo sjávarmöl notuð sem farg. Þakkanturinn er byggður úr timbri með heitgalvanhúðuðum plötum.
Á svölunum er einangrun úr harðpressari ull og þar ofan á er asfaltdúkur.
Gluggarnir eru úr timbri með álkápu og steyptir að hluta og eru frá Gluggasmiðjunni. Opnanleg fög eru úr áli sem og rennihurð út á svalir.
Niðurföllin eru úr áli. 
Húsið var málað árið 2021

Eignin er staðsett í hjarta bæjarins þar sem öll þjónusta er í næsta nágrenni og bæjarmörkin við Vesturbæinn í Reykjavík eru bakvið húsið. Stutt í alla þjónustu, leik- og grunnskóla, sund, íþróttir og góðar gönguleiðir.

Nánari upplýsingar veita Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is og Kristján Baldursson, hdl. og löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 eða á kristjan@trausti.is
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
214.900.000 kr.967 þ./m²
+149,9% á 9 árum
16. júní 2017Fyrsta sala
86.000.000 kr.387 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Suðurmýri 58

170 Seltjarnarnes
214.900.000 kr.967 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2008TegundEinbýlishúsStærð222,2 m²Herbergi6InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23150802Fasteignamat202.800.000 kr.Brunabótamat121.150.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 47 myndir

Upp ↑