fasteignasölur.is
Rauðarárstígur 3
1 af 27

Um eignina

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasal kynna í einkasölu fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð miðsvæðis í Reykjavík að Rauðarárstíg 3.  2016 var íbúðin nánast gerð fokheld, settir upp nýjir veggir, gólfefni endurnýjað, eldhús og baðherbergi endurnýjað. Á sama tíma voru allar lagnir endurnýjaðar og rafmagn að mestu. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi og 2 rúmgóð svefnherbergi. Eignin getur verið laus fljótt.
Gangstétt, gata og bílastæði fyrir framan húsið er upphitað með affalli húsa við götuna og hið sama á við um gangstétt í inngarði á bak við hús. Fjórar hleðslustöðvar eru fyrir framan húsið.


Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.    
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Fyrirhugað fasteignamat 2027 er 63.750.000 kr.
Eignin er skráð samkv. HMS 77,3 fm og þar af er geymsla skráð 4,4 fm.

Nánari lýsing:
Forstofugangur
með parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi.
Eldhús með góðri innréttingu, flísar milli skápa, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og barborð sem hægt er að sitja við.
Svefnherbergi I er mjög rúmgott með góðri innréttingu og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er mjög rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalegt í hólf og gólf með "walk-in" sturtu, handklæðaofn, upphengt salerni, góða innréttingu og glugga. Þegar allt var tekið i gegn 2016 var settur gólfhiti á baðherbergi.

Sérgeymsla íbúðar í sameign í kjallara hússins.
Sameiginlegt þvottahús, þar sem hver íbúð er með sitt tengi fyrir þvottavél og þurrkara, í sameign í kjallara.

Sjarmerandi og björt íbúð miðsvæðis í Reykjavík og stutt í alla þjónustu, leik- og grunnskóla. Svæðið kringum Hlemm, sem orðið er mjög skemmtilegt, í göngufæri og miðbær Reykjavíkur með öllu því skemmtilega sem hann hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
68.500.000 kr.886 þ./m²
+147,3% á 12 árum
27. janúar 2015Þinglýstur kaupsamningur
27.700.000 kr.358 þ./m²
+45,8% á 8 árum
24. apríl 2007Fyrsta sala
19.000.000 kr.261 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Rauðarárstígur 3

105 Reykjavík
68.500.000 kr.886 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1946TegundFjölbýlishúsStærð77,3 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20096612Fasteignamat63.500.000 kr.Brunabótamat34.150.000 kr.
Skráð hjá
Trausti fasteignasala
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑