fasteignasölur.is
Bárugata 21
1 af 19

Um eignina

RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna, Bárugötu 21 , íbúð 0001, fnr. 226-3621

Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 72,4 fm. Skráð byggingarár hússins er 1929.  Húsið er tvær hæðir og kjallari og er íbúðin í kjallara hússins. Sjá má skipulag íbúðar á teikningu sem er vistuð þar sem ljósmyndir eru af eigninni.


3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR -  3D

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

Aðkoma: Hellulagt að inngangi í íbúðina. 

Forstofa: Stór spegill sem nýtist sem hurð að geymsluplássi þar á bakvið. Fatahengi og góðar hillur. Forstafan er flísalögð.

Stofa/borðstofa:  Opið rými með parketi á gólfi. Gluggar eru á tvo vegu sem gefa íbúðinni góða birtu. Í stofunni er sjónvarpsskenkur veggfastur ásamt hillum.

Eldhús: Er flísalagt með hvítri innréttingu. Hluti innréttingarinnar við glugga á hjólum og því hægt að færa eða fjarlægja án vandræða. Spanhelluborð og bakstursofn.

Svefnherbergi:  Er með flísum á gólfi og stórum opnum fataskápi. 

Baðherbergi: Baðherbergi flísalagt á gólfum og einnig stórum hluta veggja. Stórt hornbaðkar með sturtu og handlaug með tveimur blöndunartækjum. Þrír gluggar í rýminu.

Þvottahús: Er í sameign og allir með sér þvottavélar á sínum mælum. Nýlegur gluggi.

Garður: Stór garður sem var allur endurnýjaður 2023, ásamt nýlegu ruslaskýli. 

Bárugata 21 er falleg kjallaraíbúð vel staðsett í gamla vesturbænum. Smart íbúð á frábærum stað þar sem stutt er í alla þjónustu sem og skóla og leikskóla. Niðurtekin loft með innfeldri lýsingu sums staðar í íbúðinni. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð að innan undanfarin ár á skemmtilegan hátt.  Húsið var múrviðgert og málað í lok árs 2020. Drenað í kringum húsið árið 2015 og garður endurnýjaður 2023.  Gott skipulag er í íbúðinni og nýtast fermetrar hennar einstaklega vel. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á daddi@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  

Verðsaga

5 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
69.900.000 kr.965 þ./m²
+77,0% á 6 árum
30. nóvember 2020Þinglýstur kaupsamningur
39.500.000 kr.546 þ./m²
+21,5% á 4 árum
7. október 2016Þinglýstur kaupsamningur
32.500.000 kr.449 þ./m²
+62,5% á 2 árum
29. desember 2014Þinglýstur kaupsamningur
20.000.000 kr.276 þ./m²
+0,5% á 2 árum
17. júlí 2012Þinglýstur kaupsamningur
19.900.000 kr.275 þ./m²
+5,3% á 5 árum
4. apríl 2007Fyrsta sala
18.900.000 kr.261 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Bárugata 21

101 Reykjavík
69.900.000 kr.965 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1929TegundFjölbýlishúsStærð72,4 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22636219Fasteignamat62.950.000 kr.Brunabótamat40.900.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑