fasteignasölur.is
Langalína 7
1 af 31

Um eignina

Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna, Löngulínu 7, Garðabæ 0201 fnr. 227-3628  

Mjög falleg og vel skipulögð 3ra herbergja, 117,3 fm íbúð á 2. hæð í fallegu fjölbýli í Sjálandi í Garðabæ. Stærð íbúðar er 108,8 fm og læst geymsla í kjallara er skráð 8,5 fm.  Húsið er byggt árið 2005 og er 5 hæða lyftuhús. Vönduð og góð íbúð í rólegu hverfi. 

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

Forstofa:  Flísar á gólfi. Fataskápur úr eik. 

Stofa/borðstofa: Mjög rúmgott rými með parketi á gólfi og útgengt á góðar svalir. 

Eldhús: Parket á gólfi. Góð innrétting með bakstursofni í vinnuhæð og helluborði með viftu yfir. Flísalagt á milli efri og neðri skápa.  

Svefnherbergi: Eru tvö og er parket á gólfum þeirra beggja sem og fataskápar. 

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með handlaug. Sturtuklefi. Lofttúða er í rýminu. 

Þvottahús: Flísar á gólfi. Innrétting og hillur. Skolvaskur. 

Geymsla: Læst geymsla í kjallara sem er skráð 8,5 fm. 

Bílastæði: Merkt stæði í bílakjallara. Búið er að leggja fyrir rafhleðslustöð að stæðinu. 

Lóð:  Frágengin lóð með malbikuðum bílastæðum og hellulögðum gangstéttum með snjóbræðslukerfi.

Langalína 7 er virkilega falleg og rúmgóð þriggja herbergja íbúð vel staðsett í fallegu hverfi í Sjálandi í Garðabæ.  íbúðin er með geymslu og bílastæði í bílakjallara á einum allra besta stað í Sjálandinu. Húsið er við hliðina á Jónshúsi sem er félags- og þjónustumiðstöð. Falleg náttúra og góðar gönguleiðir. 

Allar nánari upplýsingar veitir:
Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á daddi@remax.is

- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  

Langalína 7

210 Garðabær
99.900.000 kr.852 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2005TegundFjölbýlishúsStærð117,3 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF22736283Fasteignamat94.350.000 kr.Brunabótamat68.840.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑