fasteignasölur.is
Áshamar 22 íb. 105
Opið hús í dag kl. 16:30–17:00
1 af 23

Um eignina

BÓKIÐ SKOÐUN - Einar s. 888-7979 Helgi  s. 893-2233 Glódís s. 659-0510 Hlynur s. 698-2603 

MÖGUELIKI Á HLUTDEILDARLÁNI FRÁ HMS - SJÁ NÁNAR HÉR 


Hraunhamar kynnir: Glæsilega fjögurra herbergja endaíbúð með sérinngangi á 1. hæð í nýju vönduðu lyftuhúsi á frábærum stað í Hamraneshverfinu í Hafnarfirði, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólefnum. 

Möguleiki á aðeins 10% útborgun.
Skjólfesta leggur til allt að 20% á móti.
Skjólfesta fjárfestir í íbúðahúsnæði með kaupendum með það fyrir augum að auðvelda íbúðakaup.

Sjá heimasíðu sjóðsins hér. 


Íbúð 105 er fjögurra herbergja, skráð 108,4 fermetrar með geymslu. Auk þess fylgir stæði með í lokaðri bílageymslu. 

Afhending við kaupsamning.

Sjá nánar um íbúðina hér

Húsið er klætt að utan með álklæðningu, og ál/timbur gluggar. 

Nánari lýsing skv. teikningu:
Forstofa.
Gott opið rými, þar sem eldhús og stofa eru samliggjandi.
Eldhús með smekklegri innréttingu frá HTH og vönduðum eldunartækjum. 
Björt stofa og borðstofa og þaðan er útgengt á svalir sem snúa til suð-vesturs.  
Tvö góð svefnherbergi með fataskápum. 
Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum, flísalagt baðherbergi þar inn af með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.
Flísalagt baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu, þar er þvottaaðstaða.
Sér geymsla í sameign. 
Sér stæði í bílageymslu. 

Áshamar 22 er hluti af klasabyggingu þar sem skemmtilegur garður mun tengja húsin saman. 
Eykt ehf er byggingaraðili hússins sem er reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki með áratuga reynslu.

Áshamar 22 verður byggt eftir ströngum eftirlitsstaðli Svansins. 
Sjá frekari upplýsingar um Svansvottun nýbygginga með því að smella hér.  


Kaupandi borgar skipulagsgjald þegar þess verður krafist sem er 0,3 % af væntu brunabótamati eignarinnar. 

Bókið skoðun hjá sölumönnum Hraunhamars: 
​​​​​Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali s. 888-7979, einar@hraunhamar.is
Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, glodis@hraunhamar.is
Helgi Jón Harðarson, sölust. s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is


Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3,800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983 og fagnar því 40 ára afmæli á árinu 2023. 
Hraunhamar, í farabroddi í 40 ár ! – Hraunhamar.is 


Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
 

Áshamar 22 íb. 105

221 Hafnarfjörður
80.500.000 kr.743 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð108,4 m²Herbergi4BílskúrLyftaFasteignanúmerF252504012Fasteignamat81.850.000 kr.Brunabótamat76.770.000 kr.
Skráð hjá
Hraunhamar
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑