fasteignasölur.is
Árskógar 6  (803)
1 af 25

Um eignina

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Laust strax - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og falleg 94,8 m2 3ja herberbergja íbúð á 8. hæð ásamt sér bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri við Árskóga 6. Glæsilegt útsýni. Eignin er skráð 94,8 m2, þar af íbúð 89,4 og geymsla 5,4 m2.
 Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottarými. Rúmgóðar svalir með svalalokun. Sérgeymsla er í sameign í kjallara og sér bílastæði í bílageymslu fylgir íbúð.  Ný búið að pússa og lakka parket og íbúðin eru veggir nýmálaðir að innan..

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Nánari lýsing:
Forstofa/hol er með parketi á gólfi og forstofuskáp.
Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi og glugga á tvo vegu með fallegu útsýni. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar svalir með svalalokun.
Eldhús er með parketi á gólfi og U laga innréttingu með bakaraofni, helluborði og eldhúsvaski. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er inn af holi með parketi á gólfi. Horngluggi veitir góða birtu og fallegt útsýni.
Baðherbergi með þvottarými er inn af holi með dúk á gólfi, flísum á vegjjum að hluta, innréttingu með handlaug, salerni og 'walk-in' sturtu. Í þvottarými er innrétting með skolvaski, þvottasnúrur og tengi fyrir þvottavél/þurrkara.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara, skráð 5,4 m2.
Bílastæði í bílageymslu merkt B08 fylgir eigninni.
Gott viðhald hefur verið á húsinu. Á árunum 2019-2021 var hús viðgert að utan, hús og þak málað auk þess að skipt var um gler og opnanleg fög þar sem þess var þörf. Hitaveituofnar í íbúðinni eru flestir nýlegir.  
Í Árskógum er félagsstarf á vegum Reykjavíkurborgar og hægt er að fá keyptan mat í hádeginu virka daga. Húsvörður er í húsinu. Eigninni fylgir hlutdeild í samkomusal á jarðhæð auk hlutdeildar í íbúð húsvarðar.
Góð eign á frábærum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem heilsugæslu, verslanir og fl.
Kvöð er á eigninni um að kaupendur skulu vera 60 ára eða eldri og félagar í félagi eldri borgara í Reykjavík

Verð kr. 86.500.000,-
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Árskógar 6 (803)

109 Reykjavík
86.500.000 kr.912 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1992TegundFjölbýlishúsStærð94,8 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF20539121Fasteignamat75.100.000 kr.Brunabótamat56.550.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Mosfellsbæjar
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑