fasteignasölur.is
Óðinsgata 2
1 af 17

Um eignina

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu 130,1 fermetra atvinnuhúsnæði (gallerí) með veitingaleyfi á frábærum stað við Óðinsgötu 2 í Reykjavík, sem er örfá skref frá Skólavörðustíg. 
Mengi hefur verið með starfsemi í húsnæðinu um árabil og staðið fyrir uppákomum, listsýningum og fjölda annarra viðburða í samstarfi við fjölmarga innlenda og erlenda listamenn.

Eigandi eignarinnar er með veitingaleyfi í flokki 2 - 
Flokkur 2: Umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu svo sem með háværri tónlist og staðir sem kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.

Húsnæðið var mjög mikið endurnýjað árið 2013, sbr. upptalningu hér að neðan:
- Skipt um þak á bakhluta húsnæðis
- Húsnæðið allt innréttað upp á nýtt og sett ný gólfefni
- Raflagnir endurnýjaðar og rafmagnstafla
- Nýjar snyrtingar
- Nýjar neysluvatns- og gólfhitalagnir í hluta eignarinnar


Lýsing eignarinnar:
Komið er inn í sal með virkilega stórum og fallegum gluggum sem snúa að Óðinsgötu, flotað gólf og fallegur sjónsteypuveggur, fastar hillur á vegg.
Gengið er niður þrjú þrep í innri hluta sama rýmis en þar eru flotuð og parketlögð gólf og ofanbirta um þakglugga. Aukin lofthæð er í innri hluta salarins.
Tvær snyrtingar eru inn af sal og eru gólf flotuð og salerni vegghengd. Ræstikompa er inn af annarri snyrtingunni og í henni eru inntaksrými.
Inn af sal er einnig eldhús/kaffistofa með flotuðu gólfi, innréttingu, góðum gluggum og útgengi á baklóð hússins.  
Snyrting er inn af kaffistofu.

Húsið að utan lítur vel út og er nýlega málað.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, á mjög fjölförnum stað, steinsnar frá Skólavörðustíg sem er fjölfarnasta verslunargatan í Reykjavík.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignamarkaðurinn ehf
105.000.000 kr.807 þ./m²
+250,6% á 13 árum
21. maí 2013Fyrsta sala
29.950.000 kr.230 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Óðinsgata 2

101 Reykjavík
105.000.000 kr.807 þ./m²
Atvinnuhúsnæði1 svefn · 3 bað
Byggingarár1906TegundAtvinnuhúsnæðiStærð130,1 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF200577383Fasteignamat54.040.000 kr.Brunabótamat48.450.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignamarkaðurinn ehf
HeimilisfangÓðinsgata 4, 101 ReykjavíkSími570-4500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑