fasteignasölur.is
Hjallabraut 33
Opið hús í dag kl. 13:00–13:30
1 af 37

Um eignina

Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja endaíbúð á þriðju hæð í þessu vinsæla fjölbýli fyrir 60 ára og eldri. Eignin er skráð alls 93,3 fm að stærð hjá FMR, henni fylgir 12,2 fm sérgeymsla í kjallara og er því samtals 105,5 fm. Tvær nýlegar lyftur eru í húsinu.  
 

Falleg 3ja herbergja endaíbúð með fallegu útsýni yfir Hafnarfjörð og víðar. Eignin er skráð hjá HMS 93,3 fm. Að auki sér geymsla í kjallara 12,2 fm þannig að stærð samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu er 105,5 fm. Forstofa með parket á gólfi. Stofa og borðstofa með parket á gólfi, gengið  út á suður svalir með fallegu útsýni yfir Hafnarfjörð og Reykjanesskagann. Eldhús og borðkrókur með parket á gólfi, flísar á milli skápa, helluborð og ofn í vinnuhæð. Baðherbergi með flísum á gólfi og vegg, sturta, innrétting. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi. Tvö herbergi með parket á gólfi, hjónaherbergið er með skápum og yfirbyggðar svalir til vesturs. Rúmgóð sér geymsla er í kjallara. 
 
Húsið er klætt að utan að mestu og því viðhaldslítið. Undanfarin ár hefur verið skipt um þakjárn, þakrennur endurnýjaðar og steyptir fletir málaðir. Einnig voru sumir gluggar endurnýjaðir, þar á meðal stofugluggar í íbúðinni.
 
Aðgangur að samkvæmissal, leikfimissal, handavinnuherbergi, snyrtistofu, gestaherbergi o.fl er í húsinu. 
Hægt er að kaupa hádegismat alla virka daga.
 
Frábær staðsetning þar sem stutt er í matvörubúð og margskonar þjónustu.
 
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is
 
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.



Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Hjallabraut 33

220 Hafnarfjörður
86.900.000 kr.824 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1989TegundFjölbýlishúsStærð105,5 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF20755911Fasteignamat65.200.000 kr.Brunabótamat59.550.000 kr.
Skráð hjá
Ás
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑