fasteignasölur.is
Akurvellir 1
1 af 24

Um eignina

Falleg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð, merkt 02-04, í 4ra hæða lyftuhúsi á völlunum í Hafnarfirði. 
Eignin er alls 91,7 fm að stærð sem skiptist þannig að íbúðin er 83,7 fm og sér geymslan 8,0 fm.  


Íbúðin er í útleigu og því mögulegt að yfirtaka gildandi leigusamning. Traustur leigutaki.

Aðeins fjórar íbúðir á hæð, því eru allar íbúðir horníbúðir. Íbúðin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi með skápum.
Eldhús með ljósri innréttingu, helluborði, viftu og stæði fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi. Stofa er með parketi og gengið út á rúmgóðar svalir úr stofu. Baðherbergi með innréttingu og baðkari, flísar á gólfum og veggjum. Þvottahús með vask og tengi fyrir þvottavél, flísar á gólfi. Sér geymsla í kjallara, ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Mynddyrasími er í íbúðinni.  Stutt  í alla þjónustu, s.s. skóla, sund, íþróttaaðstöðu og verslanir. Gangur og sameign snyrtileg.

Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Ás
64.900.000 kr.708 þ./m²
+30,1% á 5 árum
8. desember 2021Þinglýstur kaupsamningur
49.900.000 kr.544 þ./m²
+95,7% á 6 árum
17. júlí 2015Þinglýstur kaupsamningur
25.500.000 kr.278 þ./m²
+43,3% á 9 árum
28. september 2006Fyrsta sala
17.800.000 kr.194 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Akurvellir 1

221 Hafnarfjörður
64.900.000 kr.708 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2006TegundFjölbýlishúsStærð91,7 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF22809754Fasteignamat66.350.000 kr.Brunabótamat51.100.000 kr.
Skráð hjá
Ás
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑