fasteignasölur.is
Litla Þúfa 1
1 af 8

Um eignina

Elka lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir mjög áhugaverða 30.540 m² íbúðarhúsalóð, Litlu Þúfu 1B í Kjósarhreppi.
Lóðin er einstaklega vel staðsett í fallegu og friðsælu umhverfi, með útsýni yfir Hvalfjörðinn og Meðalfellsvatn. Hér gefst spennandi tækifæri til að byggja upp framtíðarheimili í sveitinni, í nálægð við fallega náttúru en jafnframt í þægilegri akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Lóðin er eignarlóð og skráð í fasteignaskrá sem íbúðarhúsalóð.

Samkvæmt gildandi Aðalskipulagi Kjósarhrepps er lóðin innan landbúnaðarsvæðis. Þar kemur fram að heimilt geti verið, að undangenginni viðeigandi skipulagsmeðferð, að reisa íbúðarhús og tengdar byggingar.

Einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja njóta kyrrðar og náttúrufegurðar Kjósarinnar, með fallegt útsýni og Reykjavík í innan við klukkustundar akstursfjarlægð.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Litla Þúfa 1

276 Kjós
29.500.000 kr.1 þ./m²
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð30540 m²FasteignanúmerF25076771Fasteignamat11.350.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑