fasteignasölur.is
Akurholt 2
1 af 14

Um eignina

Guðrún Lilja, Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Akurholt 2 - Einstakt 4,8 hektara land með mikla möguleika á frábærum stað milli Hveragerðis og Selfoss. 

Um er að ræða 48.349 fm. eignarland með afar fallegu útsýni yfir sveitina, staðsett meðfram þjóðvegi 1 á móti Kotstrandakirkju.  Landið býður uppá fjölbreytta byggingarmöguleika og hentar einstaklega vel fyrir þá sem vilja byggja glæsilegt heimili í sveitinni með rúmgóðum útihúsum eða hesthús, þar sem stutt í alla helstu þjónustu á Selfossi. Aðkoma að landinu er frá Ölfusvegi nr. 370, á móti Kotstrandakirkju. Búið er að gera nýjan veg og undirgöng.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja lögg.fasteignasali í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is


Samkvæmt gildandi skipulagi er heimilt að byggja á landinu eitt íbúðarhús, eitt frístundahús og útihús. Byggingarheimildir eru eftirfarandi:

- Íbúðarhús allt að 300 fm. á einni eða tveimur hæðum ásamt 100 fm. bílskúr. Hámarks mænishæð er 7 metrar.
- Frístundahús, allt að 150 fm. á einni hæð með hámarks mænishæð 5 metrar.
- Skemmur eða önnur útihús, til samans allt að 800 fm., með hámarks mænishæð 7 metrar.

Nánari upplýsingar úr deiliskipulagi: Um er að ræða skipulag byggingareita í landi Akurhóla í Ölfusi. Svæðið er í dag ræktuð tún og á því eru framræsluskurðir. Í tengslun við byggingu nýs þjóðvegar hafa verið byggðar upp jarðvegs-hljóðmanir meðfram veginum, á helgunarsvæði hans. 

HÆGT ER AÐ SKOÐA SVÆÐIÐ Í ÞRÍVÍÐU UMHVERFI MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
 

Akurholt 2

816 Ölfus
29.900.000 kr.
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð0 m²FasteignanúmerF25092326Fasteignamat2.460.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 14 myndir

Upp ↑