fasteignasölur.is
Barmahlíð 41
1 af 21

Um eignina

Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu: 

Vel staðsett eign við Barmahlíð 41, 105 Reykjavík.

Tveggja herbergja 71,3 fm. íbúð í kjallara sem hefur verið endurnýjuð öll að mestu leiti árið 2019. Ný gólfefni, nýjar hurðar og eldhúsinnrétting ásamt eldvarnarhurð sett upp. Flestir gluggar íbúðar og baðherbergi þess var endurnýjað á sama tíma. Nýlega voru gólfefni endurnýjuð að nýju. 

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.is

Húsið er vel við haldið og með söluyfirliti fylgir skjal með viðhaldsögu hússins. Helst ber að nefna að húsið var endursteinað árið 2008 og það er búið að endurnýja frárennsli- og neysluvatnslagnir. Það var gert árið 2019. 

Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D

Nánari lýsing: 

Sameiginlegur inngangur. Komið er í hol sem aðskilur eldhús frá öðrum rýmum. Eldhúsið er stórt og bjart með innréttingu meðfram einum vegg og borðkrók með glugga í enda þess. Gott skápa- og vinnupláss. Helluborð með kolasíu viftu þar fyrir ofan og vask þar við hlið. Gert er ráð fyrir frístandandi ísskáp og uppþvottavél. Bökunarofn er í vinnuhæð. Herbergin eru tvö inn af gangi frá eldhúsinu, þau eru bæði mjög stór og rúmgóð, eitt stórt svefnherbergi og ein stór stofa. Baðherbergið er með flísum á gólfi og meðfram sturtunni og upp meðfram veggnum við upphengda salernið. Baðinnrétting er með handlaug og tveimur skúffum. Speglaskápur er þar fyrir ofan og handklæða ofn á veggnum þar á móti. Lítil geymsla í sameign hússins fylgir eigninni ásamt aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi. 

Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 661- 6056 / gulli@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.
 

Barmahlíð 41

105 Reykjavík
59.900.000 kr.840 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1950TegundFjölbýlishúsStærð71,3 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF203064022Fasteignamat60.800.000 kr.Brunabótamat36.500.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑