fasteignasölur.is
Lyngholt 2
1 af 50

Um eignina

Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:

Glæsilegt, vandað og afar vel skipulagt 224,2 fm einbýlishús á einni hæð að Lyngholti 2, 225 Garðabær, þar af er 51,7 fm rúmgóður bílskúr. Eignin stendur á góðum stað á Álftanesi, í rólegu og barnvænu umhverfi.

Aðkoma er snyrtileg með hellulögðu og upphituðu bílaplani. Stór timburverönd með skjólveggjum umlykur hluta hússins, þar sem finna má heitan pott og geymsluskúr. Um er að ræða 727,0 fm. eignarlóð. 

Í húsinu eru fjögur rúmgóð svefnherbergi og tvö baðherbergi. Hjónasvíta er með sér fataherbergi og baðherbergi. Sér þvottahús og geymsla. Eignin er með gólfhita, sérsmíðaðar innréttingar, hátt til lofts og fallegt, bjart alrými.

Smelltu á linkinn til að skoða húsið í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.is

Nánar um eign: 
Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskápum, flísar á gólfi og millihurð inn í alrými.
Alrými (stofa / borðstofa / eldhús): Mjög bjart og rúmgott með mikilli lofthæð og flísum á gólfi. Útgengi er út á timburverönd með heitum potti og geymsluskúr.
Eldhús: Sérsmíðaðar innréttingar með eyju og steinborðplötum. Gott vinnupláss og skápapláss. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, helluborð, bökunarofn og háfur með kolasíuviftu.
Svefnherbergisálma: Flísalagt sjónvarpshol með aðgengi að fjórum rúmgóðum svefnherbergjum (parket á gólfum). Hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi, auk útgengis út á verönd.
Baðherbergi (innan hjónasvítu): Flísalagt gólf og veggir, upphengt salerni, sturta og snyrtileg innrétting með góðu skúffuplássi. Opnanlegur gluggi.
Aðalbaðherbergi: Rúmgott og vel búið með hornbaðkari, sér sturtu, upphengdu salerni og fallegri innréttingu með steinvaski. Handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Þvottahús og geymsla: Þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skápum og skolvaski. Inn af því er sér geymsla.
Bílskúr: 51,7 fm með epoxy á gólfi, góðu skápaplássi, skolvaski, gluggum, útgönguhurð og rafdrifinni bílskúrshurð.
Lóð: Lóðin er afar snyrtileg með upphituðu og hellulögðu bílaplani. Stór timburverönd með skjólveggjum, heitum potti og geymsluskúr ásamt fallegum og vel hirtum gróðri.

Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 661- 6056 / gulli@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.


 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
176.900.000 kr.789 þ./m²
+311,4% á 19 árum
19. júlí 2007Fyrsta sala
43.000.000 kr.192 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lyngholt 2

225 Garðabær
176.900.000 kr.789 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2006TegundEinbýlishúsStærð224,2 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF229816120Fasteignamat150.150.000 kr.Brunabótamat123.300.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 50 myndir

Upp ↑