fasteignasölur.is
Túngata 36A
1 af 64

Um eignina

Miklaborg kynnir: Einstaklega smekklega endurnýjað og glæsilegt parhús við Túngötu í 101 Reykjavík. Eignin hefur nýlega gengið í gegnum afar viðamikla og vandaða endurnýjun (2024–2026) þar sem lögð var áhersla á hágæða efnisval, betra flæði og fágun í hverju smáatriði. Hér hefur tekist að sameina virðuleika hússins og nútíma þægindi. Í hluta kjallara er góð tveggja herbergja íbúð með sérinngangi, bíður uppá frábærar útleigu tekjur, en einnig er hægt að nýta þennan hluta með heildareigninni. Lóðarframkvæmdir: Garðurinn var tekinn í gegn, blómabeð voru hækkuð og römmuð inn með fallegum hleðslusteinum, byggður var pallur undir nýtt 3 hólfa sorptunnuskýli. Útveggur lóðar var múraður og lagfærður, einnig var múraður kantur og er garður hússins glæsilegur.
 Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is, s. 694-1401

Komið í forstofu, frá henni gengt í baðherbergi  með fallegri innréttingu, vegghengdu salerni, rúmgóðri sturtu og handklæðaofni. Samliggjandi stofur eru opnar við eldhús, bjart og fallegt rými. Eldhúsið er velbúið tækjum með innbyggðum ísskáp, frystiskáp og uppþvottavél. Þar er gaseldavél, skemmtilegur horngluggi þar sem er borðaðstaða. 2.hæð: Góður parketlagður stigi upp á aðra hæð, þar er hol með útgengi á vestursvalir með góðu útsýni. Hjónaherbergi er mjög rúmgott og baðherbergi er inn af því. Á hæðinni eru tvö önnur rúmgóð svefnherbergi.
Háaloft: Niðurfellanlegur stigi upp á einangrað geymsluloft er á stigapalli. Kjallari: Gengið er niður í hluta af kjallara úr forstofu, þar er hol, önnur forstofa, þvottahús og geymsla. Að auki er 2ja herbergja íbúð með sérinngang. Í henni er endurnýjað eldhús og bað.

Helstu framkvæmdir og endurnýjanir að innan:
Skipulag og flæði: Veggir í forstofu voru felldir til að stækka rýmið verulega. Við þetta myndaðist frábært flæði inn í húsið og náttúruleg birta fær að njóta sín. Stiginn milli hæða var sömuleiðis tekinn alveg í gegn og glæsilega parketlagður.
Gólfefni og hitakerfi: Undirvinna gólfa var unnin af mikilli nákvæmni og öll gólf flotuð. Nýtt gólfhitakerfi var lagt í alla miðhæð hússins til að tryggja jafnan og þægilegan hita, auk þess sem fræst var fyrir gólfhita á völdum svæðum á jarðhæð. 
Innréttingar og sérsmíði: Öllum innréttingum í húsinu hefur verið skipt út á síðustu misserum. Á miðhæðinni er stórglæsilegt nýtt eldhús með sérsmíðuðum innréttingum. Á efstu hæð er fataherbergi og skrifstofa fullbúin með nýjum sérsmíðuðum innréttingum, ásamt nýjum skápum í svefnherbergi.
Þvottahús: Rýmið var tekið alveg í gegn; skipt var um allar innréttingar og settur upp nýr, sérstaklega stór vaskur sem eykur notagildi rýmisins til muna.
Lagnir, rafmagn og baðherbergi: Allt rafmagn í húsinu var yfirfarið ítarlega og endurnýjað eftir þörfum. Hitaveitugrind var yfirfarin og lagfærð, og allar hitalagnir yfirfarnar. Neysluvatnslagnir í kjallara voru endurnýjaðar. Öll salerni og sturtutæki í húsinu voru yfirfarin og endurnýjuð eftir þörfum.
Gluggatjöld: Flest öllum gardínum í húsinu var skipt út fyrir nýjar og vandaðar lausnir.
Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is, s. 694-1401

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
215.000.000 kr.1061 þ./m²
+38,7% á 3 árum
10. nóvember 2023Þinglýstur kaupsamningur
155.000.000 kr.765 þ./m²
+36,0% á 5 árum
28. mars 2019Fyrsta sala
114.000.000 kr.562 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Túngata 36A

101 Reykjavík
215.000.000 kr.1.061 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 3 bað
Byggingarár1937TegundRað-/parhúsStærð202,7 m²Herbergi7InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF2002185Fasteignamat156.800.000 kr.Brunabótamat105.450.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 64 myndir

Upp ↑