fasteignasölur.is
Austurhólar 8
1 af 28

Um eignina

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu rúmgóða 4herb. 101,5fm endaíbúð á fjórðu hæð í lyftublokk á mjög vinsælum stað í austurhluta bæjarins, nánar tiltekið í Dísarstaðalandi. Þaðan er stutt í alla helstu þjónustu og nýbyggður leikskóli á næstu lóð við húsið. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd að utan með viðhaldslitlum klæðningum. Afhending við kaupsamning.  Frábært útsýni.

Forstofa með góðum skápum fyrir yfirhafnir og gangur inn í íbúðina til vinstri. Þar eru þrjú góð svefnherbergi, tvö þeirra með hvítum skápum. Geymsla/þvottahús á vinstri hönd sem og baðherbergið. Þar er flísalögð sturta með glerþili, upphengt klósett og handlaug á hvítri innréttingu frá Milton. Innst í íbúðinni er opið rými stofu og eldhúss og gengt út á rúmlega 7fm vestur-svalir. Í eldhúsi er falleg innrétting frá Milton, efri skápar með dökkri viðaráferð en skúffur neðri hluta hvítar og ljúflokur á öllu. Led lýsing undir efri skápum, borðin dökk og öll eldhústæki frá Electrolux.  Vínilparket er á öllum gólfum íbúðarinnar nema í votrýmum, þar eru ljósar flísar.  Hjóla/vagnageymsla í sameign í kjallara.  

Hringið og bókið skoðun.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is 

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"      
 
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · HÚS fasteignasala
63.900.000 kr.630 þ./m²
+10,9% á 4 árum
19. júlí 2022Fyrsta sala
57.600.000 kr.567 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Austurhólar 8

800 Selfoss
63.900.000 kr.630 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2022TegundFjölbýlishúsStærð101,5 m²Herbergi4InngangurSérinngangurLyftaFasteignanúmerF25210535Fasteignamat65.600.000 kr.Brunabótamat59.850.000 kr.
Skráð hjá
HÚS fasteignasala
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑