fasteignasölur.is
Kleppsvegur 24
1 af 28

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Fasteignasalan Pálsson kynnir: Tveggja til þriggja herbergja íbúð á 2.hæð (ein og hálf hæð í stigagangi) að Kleppsvegi 24. Eignin er 72,2 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Íbúðin samanstendur af svefnherbergi, skrifstofu/herbergi, stofu, holi, eldhúsi og baðherbergi. Stór geymsla þar sem einnig er aðstaða fyrir þvottavél. Sameiginlegt þurrkherbergi er í sameign.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Símonarson löggiltur fasteignasali í síma 696-6580 eða thorgeir@palssonfasteignasala.is

Nánari lýsing:
Eldhús: Eldhús parket á gólfi, tengi fyrir uppþvottavél. Nýleg innrétting.
Hol/gangur: Með parket á gólfi.
Stofa: Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp. Útgengt á svalir til vesturs.
Geymsla/herbergi: Parket á gólfi, opnanlegt fag.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, upphengt salerni, handklæðaofn, sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél. Baðherbergið er ný flísalagt og allt ný gegnumtekið.

Íbúðin er mjög hugguleg og talsvert endurnýjuð. Nýlegt eldhús, nýleg gólfefni í allri íbúðinni. Nýleg uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Íbúðin er nálægt stofnbraut en það er friðsælt og lítill umferðarhávaði þar sem íbúðin snýr ekki að Sæbrautinni heldur inn í hverfið. 

Sameignin er til fyrirmyndar og mjög snyrtileg, sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins.

- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
- Gæludýrahald hefur verið í húsinu.
- Nýlega var stigagangur í sameign málaður og teppi endurnýjuð.

Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð í snyrtilegu umhverfi, stór sameiginlegur garður er á baklóðinni og gróið umhverfi, í göngufjarlægð er leikvöllur, leikskóli, skóli, sundlaug og ýmis þjónusta.
Stutt í útivistarsvæðið í Laugardalnum og frábærar göngu- og hlaupaleiðir á Laugarnestanganum.

Að sögn eigenda hefur húsið fengið gott viðhald í gegnum árum; Frárennslislagnir voru fóðraðar undir húsi fyrir árið 2014 og drenað í kringum gaflinn, en 2019-2020 var húsið múrviðgert og málað að utan, endurnýjað járn á þaki ásamt rennum og niðurföllum, tréverk yfirfarið og málað að utan. Árið 2022 var skipt um 4 glugga í íbúðinni og en í heild 80 glugga í húsinu.
 

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Pálsson fasteignasala
59.900.000 kr.830 þ./m²
+23,5% á 5 árum
3. mars 2022Þinglýstur kaupsamningur
48.500.000 kr.672 þ./m²
+64,4% á 4 árum
11. maí 2018Þinglýstur kaupsamningur
29.500.000 kr.409 þ./m²
+61,2% á 6 árum
24. júlí 2012Þinglýstur kaupsamningur
18.300.000 kr.253 þ./m²
+30,7% á 6 árum
24. nóvember 2006Fyrsta sala
14.000.000 kr.194 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kleppsvegur 24

105 Reykjavík
59.900.000 kr.830 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1959TegundFjölbýlishúsStærð72,2 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20161301Fasteignamat55.600.000 kr.Brunabótamat36.550.000 kr.
Skráð hjá
Pálsson fasteignasala
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑