fasteignasölur.is
Hlíðasmári 19
1 af 30

Um eignina

Atvinnueign kynnir til SÖLU eða LEIGU: Um 607 fm verslunar- eða skrifstofurými á jarðhæð í Hlíðasmára 19. Rýmið hefur mikið auglýsingagildi og er mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.Rýmið er 570 fm en hlutdeild í sameign um 37 fm. Mögulegt er að leigja einnig 193 fm í kjallara í rými beint fyrir neðan.

Um er að ræða stórt og rúmgott rými með sérinngangi sem skiptist í opið vinnurými, 5-6 skrifstofur/fundarherbergi. skjalageymslu og salerni. Steinteppi er á gólfi og nýleg lýsing í lofti. Í kjallara er fullbúið eldhús með matsal fyrir um 30-40 manns. Þrjár snyrtingar og búningsklefi með sturtuaðstöðu. Góð geymsluaðstaða eða lager er til staðar. Dúkur er á gólfi. Hægt er að komast í kjallara í gegnum ramp sem liggur meðfram húsinu. 

Glerveggir eru á jarðhæð og því er hægt að skipta jarðhæðinni í 2-3 minni einingar og samnýta eldhúsaðstöðu í kjallara. VSK leggst EKKI við leiguverð. Laust strax. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma 847-7700 eða olafur@atvinnueign.is 
Halldór Már Sverrisson, viðskiptafræðingur, lögg. fasteignasali og leigumiðlari. í síma 898 5599 eða halldor@atvinnueign.is

Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf, www.atvinnueign.is
   
     - Atvinnueignir eru okkar fag -

Hlíðasmári 19

203 Kópavogur
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð607 m²FasteignanúmerF223550473
Skráð hjá
Atvinnueign
HeimilisfangSíðumúli 13, 108 ReykjavíkSími577-5500

Allar 30 myndir

Upp ↑