Um eignina
Eignin telur: Rúmgóða stofu með góðum svölum, fínt eldhús, stórt svefnherbergi, baðherbergi, hol og anddyri ásamt geymslu í sameign. Næg bílastæði og rafhleðslustæði við húsið
Nánari lýsing:
Anddyri: Með fataskáp, parket á gólfi
Stofa: Rúmgóð með stórum glugga, parketi á gólfi og útgengi á sólríkar svalir.
Eldhús: Snyrtileg eldri innrétting, nýleg eldavél, lítill borðkrókur og parket á gólfi.
Svefnherbergi: Stórt og uppgert með stórum fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Snyrtilegt með hvítri innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél.
Sameign: Sameiginleg hjóla og vagnageymsla, þvottahús og sér geymsla.
Lóð: frágengin, framan við húsið er nóg af bílastæðum og rafhleðslustæði.
Stutt er í alla verslun og þjónustu, skóla og íþróttasvsæði ÍR.
Þetta er vel skipulögð og snyrtileg íbúð á eftirsóttum stað í Seljahverfinu. Frábær fyrstu kaup.
Nánari upplýsingar veitir Atli S Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Teigasel 2
Staðsetning
Allar 29 myndir
Upp ↑



























