1 af 29
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Vetrarmýri er nýtt og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nánd við Vífilsstaði, golfvöll GKG, Heiðmörk og nýja íþróttaaðstöðu í Miðgarði. Íbúðirnar eru einstaklega vel hannaðar, svansvottaðar með gæði og þægindi í fyrirrúmi. Innréttingar eru vandaðar og allt efnisval smekklegt og tímalaust. Bókið skoðun hjá sölumanni.Í hverri íbúð er loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, stuðlar að heilnæmu innilofti og bætir líðan íbúa. Í bílakjallara fylgir öllum íbúðum eitt til tvö bílastæði og sumum þeirra fylgir einnig frístundaskúr eða bílskúr. Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir. Skipulag svæðisins hefur hlotið alþjóðlegu umhverfisvottunina BREEAM.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Gunnar Bergmann Jónsson, Löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Opinber skráning eignar:
Íbúð merkt 01-09 er vönduð 4 herbergja íbúð. Fastanúmer eignar: 253-4851. Birt flatarmál er 104.2 fm með sérafnotarétt og sérgeymslu í sameign. Bílastæði fylgir íbúðinni í bílastæðahúsi. Tölvumyndir eru af sýningaríbúðum.
**Heimasíða verkefnis**
Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með forstofuskáp. Mjög rúmgott alrými þar sem eldhús er opið inn í stofu. Stór vinnueyja í eldhúsi og gott skápapláss. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu. Útgengi út á rúmgóðan sérafnotareít um 12 fm. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni ásamt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu. Sér þvottahús innan íbúðarinnar. Geymsla og sér bílastæði í kjallara hússins.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Vetrarbraut 2 - íbúð 109
210 Garðabær
97.800.000 kr.939 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð104,2 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF253485136Fasteignamat89.050.000 kr.Brunabótamat73.500.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 29 myndir
Upp ↑



























