fasteignasölur.is
Davíðshagi 8 íbúð 202
1 af 17

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Davíðshagi 8-202 - Glæsileg og vel skipulögð 3-4 herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi með lyftu í Hagahverfi - stærð 77,9 m².

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, geymslu sem nýtist sem svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu á jarðhæð.

Nánari lýsing:
Forstofan
er með gráum flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhúsið er með góðri innréttingu, viðarhurðum undir borðplötu og ljósum efri skápum. Hvítar flísar eru á milli skápa og stæði er fyrir uppþvottavél og ísskáp sem gætu fylgt með við sölu.
Stofan og eldhúsið eru í opnu og björtu rými harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á suður svalir með fínu útsýni.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og fataskápum.
Geymslan innan íbúðar er með parketi á gólfi og fataskáp og er í dag nýtt sem svefnherbergi.
Baðherbergið er með gráum flísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum við votrými. Þar er sturta með glervængjum, ljós innrétting við vask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara, speglaskápur og vegghengt wc.
Sérgeymslan er í sameign á fyrstu hæð og er skráð 1,6 m² að stærð.

Annað:
- Lyfta er í húsinu
- Svalir snúa til suðurs.
- Sérinngangur er af svalagangi sem er að mestu lokaður með gleri.
- Gott aðgengi í og úr Hagahverfinu.
- Stutt í fallegar gönguleiðir, skóla og aðra þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Davíðshagi 8 íbúð 202

600 Akureyri
62.900.000 kr.788 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2019TegundFjölbýlishúsStærð79,8 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF25021297Fasteignamat57.950.000 kr.Brunabótamat47.300.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑