fasteignasölur.is
Helluvað 13
1 af 41

Um eignina

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
SMELLTU HÉR OG SKOÐAÐU EIGNINA Í 3VÍDD (ekki er þörf á sérstöku forriti)

RE/MAX ásamt GUÐNÝJU ÞORSTEINS löggiltum fasteignasala kynnir í einkasölu:
Fallega 3gja herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð í lyftuhúsi með stæði í bílakjallara í Norðlingaholtinu.
Íbúðin er vel skipulögð og björt með útsýni frá svölum og stofu yfir Elliðavatn og fjallahringinn, úr herbergjum er útsýni til Esjunnar. Aðeins eru 2 íbúðir á hæðinni.
Samkvæmt HMS er íbúðin 89,2fm auk 7fm geymslu samtals 96,2fm. Fyrirhugað fasteignamat 2027 er 74.845.000kr.

Eignin samanstendur af: Forstofu, holi, eldhúsi, stofu/borðstofu, 2 svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, geymslu ásamt bílastæði í kjallara. Gólfefni er viðarparket ásamt flísum.

Nánari lýsing:
Forstofa: Er með þreföldum fataskápum sem ná upp í loft. Flísar á gólfi.
Hol: Er rúmgott. Parketi á gólfi.
Eldhús: Er með góðri innréttingu, bakaraofni í vinnuhæð ásamt stein á borðum. Parketi á gólfi. 
Stofa/borðstofa: Eru í sameiginlegu opnu, björtu og flæðandi rými með útgangi út á svalir.
Svalir: Eru 7,3fm að stærð og snúa í suðaustur með frábæru útsýni.
Herbergi I: Er 13fm að stærð með sexföldum skápum sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi II: Er 8,4m að stærð með tvöföldum skápum sem ná upp í loft. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Er með innréttingu, baðkari með sturtu í ásamt flísum á gólfi og veggjum. 
Þvottahús: Er í sér rými með flísum á gólfi. 
Bílastæði: Er í upphituðum kjallara, merkt B36.
Geymsla: Er 7fm að stærð í sameign ásamt vagna og hjólageymsla. 

Staðsetning eignar er mjög góð þar sem stutt er í skóla en ekki þarf að fara yfir götu. Fylkir (fimleikar, karate, parkur, rafdeild)  ásamt dansskóla ofl. er í nágrenninu. Afar stutt er í fallegar gönguleiðir eins og Rauðavatn, Heiðmörk, Elliðaárdalinn og í Víðidal.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
74.900.000 kr.779 þ./m²
+6,2% á 2 árum
24. september 2024Þinglýstur kaupsamningur
70.500.000 kr.733 þ./m²
+221,9% á 15 árum
21. júlí 2009Þinglýstur kaupsamningur
21.900.000 kr.228 þ./m²
−5,6% á 2 árum
14. júní 2007Fyrsta sala
23.200.000 kr.241 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Helluvað 13

110 Reykjavík
74.900.000 kr.779 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2007TegundFjölbýlishúsStærð96,2 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF22829105Fasteignamat74.250.000 kr.Brunabótamat59.440.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑