fasteignasölur.is
Skektuvogur 6
1 af 24

Um eignina

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS

RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu:
 Huggulega og bjarta 98fm íbúð í lyftu húsi á 2. hæð með 2 svefnherbergjum ásamt bílastæði í kjallara. ÞG verk byggðu húsið. 

Eignin samanstendur af: Forstofu, eldhúsi, borðstofu og stofu, 2 svefnherbergjum, sér þvottahúsi, baðherbergi, geymslu ásamt bílastæði.

Nánari lýsing:
Forstofa: Er rúmgóð með góðum fataskápum. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Er með góðu skápa- og skúffuplássi, innbyggðri uppþvottavél ásamt ísskáp með frysti. Harðparket á gólfi.
Borðstofa/stofa: Eru saman í opnu og flæðandi rými með útgang út á svalir.
Svalir: Eru 7,4fm að stærð með harðviði á gólfi og snúa til suðausturs.
Herbergi I: Er með fimmföldum fataskápum sem ná upp í loft. Harðparket á gólfi.
Herbergi II: Er með tvöföldum fataskápum sem ná upp í loft. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Er með þreplausri flísalagðri sturtu með hertu gleri, handklæðaofni, upphengdu salerni, skúffum undir vaski ásamt 3 földum speglaskáp. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Er innan íbúðar í sérrými með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, snúrur í lofti. Flísar á gólfi.
Geymsla: Er 15,5fm að stærð og er í sameign.
Bílastæði: Er í upphituðum bílakjallara.
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.
Húsið að Skektuvogi er staðsteypt hús, einangrað og klætt að utan sem tryggir að viðhald sé í lágmarki. 
Hér er um að ræða skjólsæla perlu á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja rétt hjá meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Einnig er Laugardalurinn innan seilingar. Steinsnar frá Vogabyggðinni við Elliðaárnar er að finna eitt besta útivistarsvæði borgarinnar og nær allt frá Elliðaárósum upp að Elliðavatni. Á svæðinu er fjöldi göngu- og hjólastíga. Í skógi vöxnum dalnum er að finna gott skjól í rjóðrum og tilvalið að fara lautarferð.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
84.900.000 kr.866 þ./m²
+54,6% á 6 árum
16. september 2020Fyrsta sala
54.900.000 kr.560 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skektuvogur 6

104 Reykjavík
84.900.000 kr.866 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2020TegundFjölbýlishúsStærð98 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25067993Fasteignamat79.300.000 kr.Brunabótamat68.900.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑