fasteignasölur.is
Holtsbúð 39
1 af 54

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson fasteignasali í síma 7751515 og Betri Stofan kynna: Holtsbúð 39, mikið endurnýjað 180,2 fm einbýlishús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum, garðskála og heitum potti.

EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING

Eignin skiptist í anddyri, gestasnyrtingu, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, eldhús, rúmgóðar stofur, þvottahús ásamt þurrgufu og upphitaðan garðskála. Bílskúrnum hefur verið breytt í sjónvarpsrými, unglingaherbergi sem nýtist sem fjórða svefnherbergið og geymslu.
Gestasnyrtingin er nýlega endurnýjuð. Baðherbergið er með sturtuklefa, upphengdu salerni, fallegri innréttingu, flotuðu gólfi og opnanlegum glugga. Aðalsvefnherbergið er með fataherbergi inn af og tvö önnur svefnherbergi eru í aðalhúsinu.
Eldhúsið hefur verið endurnýjað með vönduðum tækjum og rúmgóðum vaski. Það er opið í báða enda og tengist stórri og opinni stofu. Nýlegt plastparket er á stofu, eldhúsi og svefnherbergjum. Skipt hefur verið um ofna að hluta.
Garðskálinn er upphitaður og með hellulögðu gólfi. Úr bílskúrshlutanum er útgengt í skjólgóðan bakgarð með timburverönd og heitum potti. Fallegt útsýni er frá svefnherbergjunum og bakgarðinum.

Garðurinn er stór og vel við haldinn. Tveir pallar eru við húsið, stærri pallur fyrir framan og minni pallur fyrir aftan. Falleg timburgirðing er umhverfis lóðina.
Innkeyrslan er mjög rúmgóð og hellulögð, með snjóbræðslu að hluta, sett hefur verið upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Húsinu hefur verið vel við haldið og það töluvert endurnýjað að innan. Einnig eru möguleikar á frekari stækkun hússins

Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 775-1515, tölvupóstur jason@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
159.900.000 kr.887 þ./m²
+263,4% á 11 árum
23. nóvember 2015Fyrsta sala
44.000.000 kr.244 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Holtsbúð 39

210 Garðabær
159.900.000 kr.887 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1974TegundEinbýlishúsStærð180,2 m²Herbergi5InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20705577Fasteignamat143.050.000 kr.Brunabótamat91.900.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 54 myndir

Upp ↑