fasteignasölur.is
Sóleyjarimi 19
1 af 51

Um eignina

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega, vel skipulagða, og rúmgóða  3. herbergja 117,5 m2 endaíbúð á 5. hæð ( efstu ) við Sóleyjarima 19 með stórkostlegu útsýni.  Samkvæmt HMS er íbúðarhlutinn skráður 108,5 m2 ásamt 9 m2 geymslu. Heimilt er einungis að selja íbúðina til einstaklinga 50 ára og eldri

Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi , eldhús, stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu, baðherbergi og þvottahús. Sér geymsla í sameign og stæði í bílakjallara.

Nánari lýsing:
Forstofan er björt og rúmgóð með flísalögðu gólfi og innbyggðum fataskáp.
Stofa-borðstofa  með parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir með svalalokunum.
Sjónvarpsstofa með parketi á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu frá Brúnás með steinborðplötu og flísum á milli skápa, Ofn í vinnuhæð, helluborð með viftu yfir, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu, eldhústæki frá AEG,  parket á gólfi
Hjónaherbergið er rúmgott með  fataskáp og parketi á gólfi. Gluggar á tvo vegu.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum,innrétting frá Brúnás með steinborðplötu , sturtuklefi, upphengt salerni og handklæðaofn,                      
Þvottahús með flísalögðu gólfi , borðplata með skolvaski, hvítar innréttingar, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er í kjallara með máluðu gólfi.
Hjólageymsla: sameiginleg á jarðhæð.

Húsið er klætt álklæðningu að utan. Næg bílastæði eru á lóð. Eignin er staðsett  í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvogi. Stutt er í fallegar gönguleiðir, leiksvæði og útivistarsvæði, en jafnframt nálægt skóla, og allri helstu þjónustu.

Í nágrenninu er öll helsta þjónusta eins og  Spöngin með allri sinni þjónustu, golfvöllur, kvikmyndahús, sundlaug  og skemmtilegar gönguleiðir

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Sóleyjarimi 19

112 Reykjavík
96.900.000 kr.825 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2007TegundFjölbýlishúsStærð117,5 m²Herbergi3InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF22947261Fasteignamat87.250.000 kr.Brunabótamat67.890.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 51 myndir

Upp ↑