fasteignasölur.is
Þangbakki 10
1 af 48

Um eignina

Björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð til sölu í lyftuhúsi að Þangbakka 10, Reykjavík.
Íbúðin er á annarri hæð og er alls 83,4 fm, þar af er sérgeymsla í sameign 7,4 fm.
Útgengi úr eldhúsi á mjög stórar suðursvalir meðfram allri íbúðinni.
Nýlegir ofnar í allri íbúðinni og nýlega búið að endurnýja lyftu.
Frábærlega vel staðsett íbúð í Mjóddinni, verslun og þjónusta í næsta nágrenni. 
Þá er útivistarparadísin Elliðaárdalurinn í næsta nágrenni ásamt góðum göngu- og hjólastígum.
Örstutt á stofnbrautir.


Nánari lýsing
Gengið er inn um sameiginlegan inngang á suðurhlið hússins. Þar er góð aðkoma með stóru anddyri, rafstýrðum útihurðum og nýlegu myndavéla- og dyrasímakerfi.
Íbúðin er á 2. hæð merkt 2-A

Inngangur/hol með skáp og parekti á gólfi.
Eldhús með eldri innréttingu, borðkrók og útgengi á stórar suðursvalir.
Nýleg eldavél. Parket á gólfi
Stofa björt og rúmgóð með stórum gluggum og parketi á gólfi.
Tvö herbergi annað stærra með góðum skápum
meðfram einum veggnum og hitt minna. Parket á gólfum.
Baðherbergi er með baðkari/sturtu, flísalagt í hólf og gólf.
Sameiginlegt þvottahús á hæðinni fyrir allar íbúðir 2. hæðarinnar.
Í sameign er sérgeymsla íbúðarinnar auk þess sem snyrtileg vagna- og hjólageymsla er aðgengileg á vinstri hönd við inngang í húsið. 
 
Á jarðhæð hússins eru einnig rými sem húsfélagið leigir út og ganga allar tekjur af leigunni inn í hússjóð.
Íbúðin er staðsett í húsi við hliðina á verslunarmiðstöðinni Mjódd og er gönguleiðin þar á milli með snjóbræðslukerfi sem tryggir gott aðgengi allt árið um kring. 
 
Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Jónasdóttir löggiltur fasteignasali í síma 661-4141, eða gegnum tölvupóstfangið sigridur@bjarturfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0,8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: Af kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv., kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Þangbakki 10

109 Reykjavík
63.500.000 kr.761 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1979TegundFjölbýlishúsStærð83,4 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF20469283Fasteignamat56.750.000 kr.Brunabótamat44.600.000 kr.
Skráð hjá
Bjartur fasteignasala
HeimilisfangHlíðasmára 10, 201Sími661-4141

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 48 myndir

Upp ↑