fasteignasölur.is
Þessi eign er ekki lengur í sölu.
Kolagata 1
1 af 23

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Kolagata 1, nýleg, 3ja herbergja íbúð í lyftuhúsi, á besta stað í miðbænum. Útsýni út á höfnina.  Glæsileg 3ja herbergja íbúð með borgarlífið í beinni æð.
Hægt er að bóka skoðun með því að hringja í Jason . sími 7751515.

Sýnum daglega.

Íbúðin er með aukinni lofthæð, stórum og björtum gluggum. Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, rúmgóða hjónasvítu með baðherbergi inn af, annað baðherbergi, svefnherbergi, þvottahúsi og sérgeymslu í kjallara.

Eignin er laus í byrjun september og húsgögn og innbú geta fylgt með gegn aukagjaldi. 
Hússjóður á mánuði er í kringum 34 þúsund á mánuði. 

Húsið er hluti af Hafnartorgi, nýlegum og glæsilegum byggingum sem setja nýja svip á miðbæinn við höfnina. Gengið er inn í stigaganginn frá göngugötu milli húsanna en einnig ná bæði stigi og lyftur niður í bílakjallarann undir húsunum. Bílakjallarinn tengist Hörpu bílakjallara.  Íbúðin er glæsileg, en vandað efnisval, glæsileg hönnum, mikil lofthæð og stórir gluggar einkenna íbúðina sem og húsið allt. Komið er inn í rúmgótt anddyri með stórum fataskáp og þvottahúsi á vinstri hönd. Þaðan er komið inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu. Sjónvarpsrými er búið að breyta í svefnherbergi. Glæsileg innrétting er á vegg og í eldhúsi og eyja með helluborði, innfelldri viftu og innbyggðum vínkæli. Öll tæki í eldhúsi fylgja, þar með talið ísskápur og uppþvottavél. Stórir og bjartir gluggar setja mikinn svip á rýmið og ásamt mikilli lofthæð gerir þetta rýmið einstaklega vistlegt.  Úr stofu er gengið út á vestur-svalir með tréklæðningu á gólfi og frá þeim er útsýni til sjávar. Hjónaherbergi er rúmgott og með miklu skápaplássi. Baðherbergi er inn af hjónaherbergi. Marmaraflísar eru á gólfi þvottahúss og gólfi og veggjum beggja baðherbergja. Innréttingar á böðum og eldhúsi eru glanshvítar en fataskápar eru hvítir. Rekstraraðilar sjá um rekstur og viðhald bílakjallarans, þar sem hægt er að fá leigt stæði, Margvíslegar útfærslur eru á leigusamningum sem ætti að koma til móts við þarfir hvers og eins. Á gólfum íbúðarinnar er dökkleitt „rustik“ parket. Allt efnisval og frágangur er sérlega vandað. Vel staðsett, einstaklega glæsileg eign þar sem vandað hefur verið til verka.

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
129.900.000 kr.1106 þ./m²
+3,9% á 1 ári
5. desember 2025Fyrsta sala
125.000.000 kr.1064 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kolagata 1

101 Reykjavík
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár2018TegundFjölbýlishúsStærð117,5 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF23635978Fasteignamat119.200.000 kr.Brunabótamat90.000.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Sambærilegar eignir í hverfinu

Allar 23 myndir

Upp ↑