fasteignasölur.is
Strandgata 19A
1 af 95

Um eignina

Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lf-fasteignasala.is kynna:
Strandgata, 19a, Eskifirði. Einbýli með innbyggðum bílskúr.
Á neðri hæð er möguleiki á aukaíbúð eða skrifstofu- eða verslunarrými.
Húsið var upphaflega byggt af tryggingafélagi sem hafði þar skrifstofur og íbúð fyrir útibússtjóra.

Inngangur í íbúðina, geymslur og bílskúr henni tilheyrandi ásamt þvottahúsi og snyrtingu eru á neðri hæð.
Á efri hæðinni er mjög rúmgóð 5 herbergja íbúð.
Komið er upp á góðan stigapall og við hlið hans er mjög stór stofa og er arin í miðju rýminu.
Opið er milli stofu og eldhúss sem er rúmgott og með stórri innréttingu.
Við svefnherbergjagang er baðherbergi með baðkari og sturtu og 4 góð svefnherbergi og er eitt þeirra með suðursvölum.
Svalir eru eftir endilangri norðurhliðinni.
Stórir gluggar eru til suðurs og handan götunnar er smábátahöfn með mjög fallegu og skemmtilegu umhverfi.
Útsýni úr húsinu er mjög fallegt.
Bílastæði eru framan við bílskúrinn og inngang í íbúðina en einnig eru almenningsbílastæði meðfram húsinu.

 

Strandgata 19A

735 Eskifjörður
89.500.000 kr.314 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 3 bað
Byggingarár1974TegundEinbýlishúsStærð285 m²Herbergi8InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF21703921Fasteignamat67.900.000 kr.Brunabótamat144.300.000 kr.
Skráð hjá
Lindin
HeimilisfangÚtkaupstaðarbraut 1, 735Sími893-1319

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 95 myndir

Upp ↑