fasteignasölur.is
Langholtsvegur 48
1 af 41

Um eignina

Skoðaðu 3 d myndir af eigninni hér 

Afar fallega og vel skipulagða 5-6 herbergja íbúð á tveimur hæðum (parhús) ásamt aukaíbúð í kjallara og bílskúr, innst í botnlanga við Langholtsveg. Glæsilegur pallur í veðursælum garði með heitum potti.
Birt stærð aðalíbúðar er 132,4 fm hjá Þjóðskrá Íslands, aukaíbúðar 49,5 fm og bílskúrs 48 fm, samtals 229,9 fm.


Íbúð/parhús staðsett í afar rólegu og fjölskylduvænu hverfi. Fjögur svefnherbergi. Afar skjólsæll garður. Aukaíbúð.

Gengið er inn í flísalagða lokaða forstofu, sem er með fataskápum. Á hæðinni er stofa og borpstofa, eldhús og gestasnyrting. Gestasnyrtingin er með flísalögðu gólfi. Eldhúsið er með U-laga innréttingu, neðri skápum og efri að hluta. Stofan er stór og björt.
Á efri hæðinni eru fjögur svefnherbergi og lítið vinnuherbergi þaðan sem gengið er út á svalir. Öll svefnherbergin eru parketlögð og með fataskápum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, þar er handklæðaofn og sturtuklefi, rýmið er gluggalaust.

Gengið úr íbúðinni niður í kjallara þar sem þvottaaðstaða er til staðar. Úr því rými er gengið inn í sameign með hinum hluta hússins og sérgeymslu.

Aukaíbúð: Gengið inn um sérinngang að utan (einnig innangengt í þvottahús í kjallara). Eldhús og stofa í björtu opnu rými, eldri eldhúsinnrétting, flísar á gólfi í eldhúshlutanum og parket í stofu. Baðherbergið er nýlega standsett. Svefnherbergið er parketlagt.

Bílskúrinn er upphitaður og með rafmagni.

Stór og góður pallur með heitum potti í veðursælum garði. Búið er að endurnýja bárujárn á þaki ásamt skólplögnum. 

Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ásmundur Skeggjason asi@hofdi.is, Gsm 895 3000.-


 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Höfði Fasteignasala
140.000.000 kr.609 þ./m²
+31,5% á 4 árum
9. ágúst 2022Fyrsta sala
106.500.000 kr.463 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Langholtsvegur 48

104 Reykjavík
140.000.000 kr.609 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 3 bað
Byggingarár1902TegundRað-/parhúsStærð229,9 m²Herbergi5InngangurTveir inngangarBílskúrFasteignanúmerF20201463Fasteignamat123.950.000 kr.Brunabótamat100.250.000 kr.
Skráð hjá
Höfði Fasteignasala
HeimilisfangSuðurlandsbraut 52 108 Reykjavík, Suðuðurlandsbraut 52 ReykjavíkSími533-6050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑