fasteignasölur.is
Þórðarsveigur 4
1 af 31

Um eignina

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun -  Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir:  Falleg og vel skipulögð 103,1 m2 4ra herbergja íbúð á 2. hæð ásamt bílastæði í bílakjallara í lyftuhúsnæði við Þórðarsveig 4 í Reykjavík. Eignin er skráð 103,1 þar af íbúð 94,3 m2 og geymsla 8,8 m2. Eignin skiptist í forstofu, stofu/forstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er í sameign í kjallara. Góðar svalir í suðurátt. Sérinngangur af opnum stigagangi. Staðsetning hússins er frábær í rólegri barnvænni götu. Stutt í alla helstu þjónustu. Sundlaug, golfvöllur, grunnskóli og leikskóli í næsta nágrenni. Stutt í íþróttasvæði Fram. Miklir útivistamöguleikar, t.d. við Úlfarsá, Reynisvatn og Hólmsheiði. Búið er að setja upp hleðslustöð við stæðið í bílakjallaranum

Smellt hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með nýlegri hvítri eldhúsinnréttingu og harðparketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð, vifta, ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og með harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á skjólgóðar svalir í suðurátt.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum. Falleg innrétting með skolvask. Handklæðaofn, skápur og upphengt salerni.
Þvottaherbergi er innan íbúðar. Flísar á gólfi, góð innrétting og tengi fyrir þvottavél, þurrkara og skolvask.
Sérgeymsla er í sameign, skráð 8,8 m2.
Bílastæði í lokuðum og upphituðum bílakjallara fylgir eigninni, merkt B13. Búið er að setja upp hleðslustæð við stæðið

Annað: Íbúðinni fylgir hlutdeild að sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Hellulögð stétt er fyrir framan hús og baklóð tyrft. Sameiginleg malbikuð stæði á framlóð hússins. Rafhleðslustaurar er á lóð í eigu húsfélagsins. Húsið og sameign hafa fengið gott viðhald á undanförnum árum. Meðal annars hefur nýlega verið farið í múrviðgerðir og húsið steinað og málað. Þá er nýlega búið að byggja svalalokun yfir svalagang efstu hæða til þess að vernda húsið fyrir veðri. Nýlega búið að skipta um myndavéladyrasíma í húsinu og mála og skipta um teppi í stigagangi. Samþykkt var að leggja rafmagn fyrir hleðslu i bilakjallarann, þannig að það fólk þarf þá bara að leigja eða greiða fyrir hleðslustöðina.

Verð kr. 79.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasala Mosfellsbæjar
79.900.000 kr.775 þ./m²
+97,3% á 8 árum
27. apríl 2018Fyrsta sala
40.500.000 kr.393 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Þórðarsveigur 4

113 Reykjavík
79.900.000 kr.775 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2003TegundFjölbýlishúsStærð103,1 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF226058829Fasteignamat73.650.000 kr.Brunabótamat56.910.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Mosfellsbæjar
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑