fasteignasölur.is
Drápuhlíð 7
1 af 29

Um eignina

Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og netfang jason@betristofan.is  kynna: Drápuhlíð 7, 4ra herbergja, 116 fm  íbúð á 2. hæð í Hlíðunum, 105 Reykjavík.

Stutt í skóla og þjónustu. 

Sameiginlegur inngangur með risi.
Hol: Harðparket á gólfi, úr holi er gengið í öll rými.
Eldhús: Eldhús með endurnýjuðum dökkum innréttingum. Pláss fyrir uppþvottavél. 
Stofa/borðstofa: Stofa er með fallegum bogaglugga sem setur mikin svip á rýmið, gólf með harðparketi. Gluggar í slæmu ástandi.
Baðherbergi: Baðherbergi er rúmgott, flísalagt og með baðkari. Auðvelt að koma fyrir þvottavél í baðherbergið.
Svefnherbergi I er með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi, án fataskáps.
Svefnherbergi III: Svefnherbergi er með parket á gólfi, án fataskáps.
Geymsla: Sérgeymsla að stærðinni 6,7 fermetra er á jarðhæð með glugga.
Þvottahús:  Sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Skolp og dren hefur verið endurnýjað.

Íbúðin hefur verið í útleigu. Eigandi hefur ekki búið sjálfur í eigninni og er því ekki kunnugur um ástand hennar að fullu og hvetur til nánari skoðunar.

Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 775-1515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali

 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Drápuhlíð 7

105 Reykjavík
82.000.000 kr.706 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1947TegundFjölbýlishúsStærð116,2 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF203022113Fasteignamat96.350.000 kr.Brunabótamat55.300.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑