fasteignasölur.is
Stakkholt 2b
1 af 30

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

ÍBÚÐIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM SÖLU SVO OPIÐ HÚS SUNNUDAG 11.10.26 FELLUR NIÐUR.

Glæsileg 4ra herbergja 124 fm íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Stakkholt 2b. Húsið var byggt árið 2014. Íbúðin skiptist m.a. í samliggjandi stofu og eldhús, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús og forstofu. Stórar svalir með svalalokun til suðvesturs. Sér geymsla fylgir í kjallara. Íbúðinni tilheyrir stæði í bílageymslu.
Seljendur skoða skipti á stærri eign í sama hverfi eða í næsta nágrenni.

Nánari uppl. veitir: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, magnea@eignamidlun.is


Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í parketlagða forstofu með skápum.
Stofa og eldhús: Stofan og eldhúsið mynda eina heild. Mjög rúmgott og bjart rými með stórum gluggum. Falleg ljós innrétting er í eldhúsi. Eyja með helluborði og barborði. Gengið er út á rúmgóðar svalir til suðvesturs úr stofu. Svalalokun er á svölum.
Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt hjónaherbergi með skápum.
Barnaherbergi I: Parketlagt herbergi með skápum. 
Barnaherbergi II: Parketlagt herbergi með skápum. 
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi. Falleg ljós innrétting við vask. Walk-in sturta er á baðherbergi. Handklæðaofn.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús. Góð innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Geymsla: Sér geymsla er í kjallara.

Glæsileg íbúð á eftirsóttum stað í göngufjarlægð frá miðbænum, Klambratúni og Kjarvalsstöðum. Stutt er í verslanir og alla helstu þjónustu.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
114.900.000 kr.927 þ./m²
+121,4% á 12 árum
6. mars 2015Fyrsta sala
51.900.000 kr.419 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Stakkholt 2b

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð124 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
114.900.000 kr.927 þ./m²
Byggingarár2014InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2350744Fasteignamat104.450.000 kr.Brunabótamat87.160.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑