fasteignasölur.is
Barmahlíð 49
Opið hús í dag kl. 18:00–18:30
1 af 31

Um eignina

Eignatorg kynnir: Opið hús Barmahlíð 49, fyrsta hæð miðvikudaginn 9. september, milli kl. 18:00 og 18:30.
Björt og skemmtilega skipulögð 4ra herbergja sérhæð ásamt bílskúr sem breytt hefur verið í notalega studíóíbúð. Eignin er laus og til afhendingar við undirritun kaupsamnings. 
Húsið var steinað að utanverðu árið 2009 og þakjárn endurnýjað 2003. Íbúð í bílskúr var innréttuð 2019. Eignin er laus og til afhendingar við undirritun kaupsamnings.


Skv. skráningu Fasteignaskrár er hæðin 105 fm., sérgeymsla í kjallara 4,5 fm. og bílskúrinn 28 fm. Samtals er eignin því skráð 137,5 fm.

Nánari lýsing: Sérinngangur er inn í íbúðina. Forstofa með flísum á gólfi, skóskáp og fatahengi. Alrými með parketi á gólfi. Herbergi með parketi á gólfi og tvöfaldri hurð út á suðursvalir. Borðstofa / herbergi með parketi á gólfi og glugga til suðurs. Stofa með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Tvöföld rennihurð er á milli stofu og borðstofu / herbergis. Eldhús með dúk á gólfi, upprunalegri innréttingu og glugga. Baðherbergi með flísum á gólfi, flísum á veggjum, innréttingu, baðkari, handklæðaofni og glugga. Hjónaherbergi með parketi á gólfi, klæðaskápum og glugga.
Sérgeymsla er í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi.
Sér heitavatnsmælir er fyrir þennan eignarhluta.
Bílskúrinn er innréttaður sem studíó íbúð með sérinngangi.
Nánari lýsing: Stofuhol með parketi á gólfi,  gluggum á tvo vegu og eldhúsinnréttingu. Baðherbergi með flísum á gólfi, innréttingu, sturtu, upphengdu salerni, glugga og aðstöðu fyrir þvottavél.

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Eignatorg
110.000.000 kr.800 þ./m²
+109,5% á 9 árum
26. október 2017Fyrsta sala
52.500.000 kr.382 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Barmahlíð 49

105 Reykjavík
110.000.000 kr.800 þ./m²
Hæð3 svefn · 1 bað
Byggingarár1948TegundHæðStærð137,5 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF20306597Fasteignamat98.350.000 kr.Brunabótamat58.380.000 kr.
Skráð hjá
Eignatorg
HeimilisfangSyðsta-Mörk, 861 HvolsvöllurSími510-3500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑