fasteignasölur.is
Arnarhraun 20
Opið hús 13. sept. kl. 13:00–13:30
1 af 30

Um eignina

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson og Tara Sif Birgisdóttir lögg. fasteignasalar kynna fallega og vel skipulagða þriggja herbergja 86,4 fm íbúð á 2. hæði í litlu fjölbýlishúsi við Arnarhraun 20 á eftirsóttum stað í Hafnarfirði. 

Einstaklega bjart og opið alrými með mörgum gluggum. Þvottahús er innan íbúðar. Sameiginlegur gróðursæll garður, snyrtileg sameign og sér bílaplan fyrir húsið. Einungis sex íbúðir eru í húsinu. Eignin er vel staðsett og stutt í alla helstu þjónustu. 

Framkvæmdir síðustu ára skv. seljanda: 
- Sprunguviðgert fyrr á þessu ári.
- Gluggar, gler og allar hurðir að utan endurnýjað 2025.
- Tenglar og rofar endurnýjaðir og dregið fyrir nýju rafmagni innan íbúðar 2020.
- Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð 2020.
- Þakjárn endurnýjað 2014.

Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, borðstofu/stofu, gang/hol, tvö svefnherbergi og þvottahús. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi. 
Borðstofa/stofa: Parket á gólfi, útgengt á svalir sem snúa til suðausturs. 
Eldhús: Hvít innrétting með grárri borðplötu og góðu skápaplássi.
Gangur/hol: Parket á gólfi, nú nýtt sem skrifstofa. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting, baðkar og sturta.  
Hjónaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi, nýlegur fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Þvottahús: Inn af forstofu með glugga, flísar á gólfi, svört borðplata. 
Geymsla: 3,7 fm með glugga á jarðhæð ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 

Allar upplýsingar um eignina veita:
Tara Sif Birgisdóttir lögg. fasteignasali í 847 8584 / tara@fastlind.is
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í 849-0672 / heimir@fastlind.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
69.900.000 kr.809 þ./m²
+86,4% á 7 árum
24. september 2019Þinglýstur kaupsamningur
37.500.000 kr.434 þ./m²
+110,4% á 8 árum
9. febrúar 2012Fyrsta sala
17.825.000 kr.206 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Arnarhraun 20

220 Hafnarfjörður
69.900.000 kr.809 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1964TegundFjölbýlishúsStærð86,4 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF20733821Fasteignamat59.150.000 kr.Brunabótamat43.950.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑